13 október 2025
/
Mál nr. 513/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 513/2025
Mánudaginn 13. október 2025
A og B
gegn
C
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Björn Jóhannesson lögfræðingur og Helgi Viborg sálfræðingur.
Með kæru, dags. 20. ágúst 2025, kærði A, og B, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun C, dags. 19. ágúst 2025.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 20. ágúst 2025. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 21. ágúst 2025, til kærenda, óskaði nefndin eftir því að kærendur sendu úrskurðarnefndinni afrit af hinni kærðu ákvörðun. Beiðnin var síðan ítrekuð með tölvupósti til kærenda þann 9. september 2025 og 23. september 2025. Kærendur hafa ekki svarað erindum úrskurðarnefndarinnar. Samkvæmt upplýsingum frá C er mál kærenda til vinnslu hjá þjónustunni.
Frekari gagna var ekki aflað vegna kærunnar.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru segir að mál hafi verið í gangi vegna kærenda og dætra þeirra. Kærendur kveðast hafa verið boðuð á fund barnaverndarþjónustunnar þar sem þess hafi verið farið á leit við kærendur að þau færu í áfengismeðferð. Þetta hafi kærendur ekki vilja fallast á og viljað aðstoð frá barnaverndarþjónustunni.
III. Niðurstaða
Samkvæmt 1. mgr. 51. gr. bvl. geta aðilar barnaverndarmáls skotið úrskurði eða ákvörðun samkvæmt 6. gr. laganna til úrskurðarnefndar velferðarmála innan fjögurra vikna frá því að viðkomandi var tilkynnt um úrskurð eða ákvörðun.
Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála.
Samkvæmt gögnum málsins er ljóst að mál kærenda er til vinnslu hjá C. Ekki verður þó séð að fyrir liggi ákvörðun barnaverndarþjónustunnar sem sé kæranleg til úrskurðarnefndar velferðarmála. Kæru er því vísað frá úrskurðarnefndinni.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, og B, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Kári Gunndórsson