13 október 2025

/

Opnir viðtalstímar Loga á Austurlandi

{image.Description}
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra

Logi Einarsson, menningar,- nýsköpunar- og háskólaráðherra, verður með opna viðtalstíma á Austurlandi næstkomandi fimmtudag, 16. október. Þar gefst öllum áhugasömum færi á að eiga milliliðalaust spjall við ráðherrann um þau fjölmörgu málefni sem eru á borði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.

Ráðherra verður með tvo opna viðtalstíma á Austurlandi. Fyrst mun hann taka á móti gestum og gangandi í húsnæði Austurbrúar á Egilsstöðum frá klukkan 13:00 til 13:30. Því næst er ferðinni heitið til Eskifjarðar þar sem Logi mun ræða við áhugasama frá klukkan 17:15 til 17:45 í Tónlistarmiðstöð Austurlands. 

Opnu viðtalstímarnir eru liður í heimsóknaröð menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um landið, en í maí sótti hann Ísafjörð heim og 6. október síðastliðinn var Logi á Akureyri. Á ferð sinni um Austurland mun ráðherrann jafnframt heimsækja fyrirtæki og stofnanir á svæðinu, auk þess að funda með sveitarstjórnarfólki.

„Á ferðum mínum um landið hef ég séð hvað það er mikill kraftur í landsmönnum. Alls staðar þar sem ég kem er verið að skapa, rannsaka og stuðla að hvers kyns framförum fyrir íslenskt samfélag. Markmið mitt er að hlúa að þessari þróun, styrkja hana og efla, þannig að þessi gróska þrífist enn betur um land allt,“ segir Logi.