16 október 2025

/

Áskoranir þróunarríkja og alþjóðahagkerfisins efst á baugi á ársfundum Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

{image.Description}

Staða og horfur í alþjóðahagkerfinu, samstaða með Úkraínu og atvinnusköpun í þróunarríkjum voru meðal umræðuefna á ársfundum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans sem fram fara í Washington, D.C. í vikunni. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, tekur þátt í fundunum fyrir hönd Íslands. Á þeim koma saman fjármála-, þróunar- og utanríkisráðherrar, sem og seðlabankastjórar aðildarríkja sjóðsins og bankans ásamt leiðtogum alþjóðlegra fjármálastofnana og lánshæfismatsfyrirtækja, til að ræða stöðu efnahagsmála og þróunar á heimsvísu.

„Mikilvægi Alþjóðabankans í að takast á við hnattrænar áskoranir á borð við fátækt og ójöfnuð, afleiðingar átaka og loftslagsbreytinga, hefur sjaldan verið meira. Bankinn gegnir lykilhlutverki við enduruppbyggingu og er hryggjarstykki í stuðningi Íslands við Úkraínu. Ásamt umfangsmikilli endurreisn innviða og grunnþjónustu, hefur stuðningur frá bankanum skilað sér í árangursríkri umbótavegferð úkraínskra stjórnvalda í átt að aðild að Evrópusambandinu,“ segir Daði Már sem tók þátt í hringborðsumræðum ráðherra um enduruppbygginu Úkraínu.

Stórum hluta efnahagsstuðnings Íslands við Úkraínu hefur verið varið gegnum sjóði Alþjóðabankans, allt frá árdögum innrásarstríðs Rússlands. Gífurleg þörf er fyrir efnahagsstuðning ekki síst í orkumálumnú þegar vetur fer í hönd og árásir Rússa hafa aldrei verið harðari.