16 október 2025
/
Mál nr. 464/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 464/2025
Fimmtudaginn 16. október 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 30. júlí 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. júlí 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 12. maí 2025 og var umsóknin samþykkt 26. júní 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. júlí 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hans til atvinnuleysisbóta.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 30. júlí 2025. Með bréfi, dags. 12. ágúst 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 27. ágúst 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. ágúst 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að fjarvera hans hafi stafað af heilsufarsástæðum sem hann hafi ekki getað haft áhrif á. Kærandi biðjist afsökunar á því að hafa ekki mætt en hann skilji vel að það hafi verið mikilvægt. Kærandi hafi ekki ætlað sér að vanrækja skyldur sínar gagnvart Vinnumálastofnun. Kærandi óski eftir endurskoðun á ákvörðun Vinnumálastofnunar um að svipta hann atvinnuleysisbótum í tvo mánuði með hliðsjón af aðstæðum hans. Kærandi sé staðráðinn í að vinna með Vinnumálastofnun og mæta í öll framtíðarviðtöl.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 12. maí 2025. Með erindi, dags. 26. júní 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Með erindi, dags. 8. júlí 2025, hafi kærandi verið boðaður á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, Grensásvegi 9 í Reykjavík þann 10. júlí 2025, klukkan 13:00. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið send þann 8. júlí 2025 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang kæranda, X og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 8. júlí 2025, klukkan 09:52. Kærandi hafi hvorki mætt í boðað viðtal né boðað forföll.
Með erindi, dags. 17. júlí 2025, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum á fjarveru kæranda á boðaðan kynningarfund. Áréttað hafi verið að hefði kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Jafnframt hafi athygli verið vakin á að hefði kærandi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um breytingar á högum gæti það leitt til viðurlaga í formi biðtíma á greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum.
Þann 21. júlí 2025 hafi kærandi komið á þjónustuskrifstofu og veitt þá útskýringu að hann hafi talið að fundurinn ætti að vera 25. júlí en ekki þann 10. júlí 2025. Kærandi hafi ekki mætt af þeim sökum. Þann 24. júlí 2025 hafi borist læknisvottorð frá kæranda þar sem fram hafi komið að hann hefði verið með öllu óvinnufær vegna sjúkdóms þann 10. júlí 2025. Læknisvottorð, dags. 23. júlí 2025 hafi verið gefið út á vef Heilsuveru.
Með erindi, dags. 29. júlí 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að í ljósi þess að hann hefði ekki tilkynnt Vinnumálastofnun tafarlaust um veikindi sín væri það niðurstaða stofnunarinnar að bótaréttur kæranda skyldi felldur niður í tvo mánuði. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Í kæru greini kærandi frá því að hann hafi átt við krankleika að stríða þann 10. júlí 2025 og ómögulegt hafi reynst að sinna fundarboði Vinnumálastofnunar vegna þess.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund. Kærandi hafi veitt tvenns konar skýringar á fjarveru sinni sem lúti að því að hann hafi talið fundinn vera 25. júlí 2025 en ekki þann 10. júlí 2025 eins og hafi komið fram í boðun. Síðar hafi kærandi sagt að hann hefði ekki getað mætt sökum veikinda. Meðal gagna í máli þessu sé læknisvottorð, dags. 23. júlí 2025, þar sem fram komi að kærandi hafi verið veikur 10. júlí 2025. Jafnframt hafi komið fram í vottorði að tilkynning um veikindi hafi borist 23. júlí 2025.
Í ljósi þess að kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um veikindi sín án ástæðulausrar tafar hafi honum með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 29. júlí 2025, verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Þannig sé meðal annars í 3. mgr. 9. gr. laganna kveðið á um að sá sem teljist tryggður á grundvelli laganna skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunni að verða á högum hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum. Upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar sé atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal um upplýsingaskyldu. Í lok umsóknar staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði.
Samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni eða aðstæðum þeirra að öðru leyti samkvæmt 1. mgr. 14. gr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segi í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar.
Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um veikindi sín fyrr en eftir að stofnunin hafi óskað eftir skýringum á fjarveru hans á boðaðan kynningarfund Vinnumálastofnunar. Í skýringum beri kærandi við tvenns konar ástæðum á fjarveru sinni. Það sé afstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna um forföll og veikindi sín. Ekki verði séð af fyrirliggjandi gögnum að kærandi hafi verið ófær um að tilkynna Vinnumálastofnun um veikindi sín. Vinnumálastofnun telji að kærandi hafi ekki uppfyllt áskilnað 2. mgr. og 5. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um að tilkynna um tilfallandi veikindi án ástæðulausrar tafar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kæranda beri að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. júlí 2025 um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segir meðal annars í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Jafnframt skuli hann skila inn læknisvottorði innan viku frá lokum veikindanna óski Vinnumálastofnun eftir því.
Í máli þessu liggur fyrir að kærandi mætti ekki á boðaðan kynningarfund hjá Vinnumálastofnun þann 10. júlí 2025. Kærandi mætti til Vinnumálastofnunar þann 21. júlí 2025 og veitti þær skýringar að hann hafi haldið að fundurinn ætti að vera 25. júlí 2025. Síðar skilaði kærandi inn læknisvottorði, dags. 23. júlí 2025 þar sem fram kom að hann hefði verið veikur 10. júlí 2025.
Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr., 2. og 5. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki strax um upphaf veikinda sinna 10. júlí 2025. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. júlí 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir