17 október 2025

/

Mikil tækifæri til að byggja upp starfsemi á Bakka

{image.Description}
Mynd: iStock
Húsavíkurhöfn

Starfshópur um atvinnumál á Húsavík og nágrenni hefur skilað skýrslu sinni og var hún rædd á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Forsætisráðherra skipaði starfshópinn í júní sl. en verkefni hans var að kortleggja stöðu atvinnumála á svæðinu og vinna tillögur að viðbrögðum stjórnvalda í kjölfar tímabundinnar rekstrarstöðvunar kísilvers PCC á Bakka.

„Ég hef mikla trú á tækifærunum á Bakka og í nágrenni Húsavíkur. Forsætisráðuneytið hefur átt í nánu samstarfi við Norðurþing og aðra hagaðila við gerð þessarar skýrslu. Og við höfum meðal annars rætt við sex áhugasama fjárfesta sem vilja koma að uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu. Gagnaver eru til dæmis möguleiki sem getur farið hratt í framkvæmd,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í tilefni af útgáfu skýrslunnar.

Í skýrslunni er lögð áhersla á að mikil tækifæri séu til staðar varðandi uppbyggingu starfsemi á Bakka. Þar hafi verið byggðir upp öflugir innviðir og mikið starf unnið við þróun græns iðngarðs sem geri svæðið eftirsóknarvert fyrir fjárfesta. Þannig fundaði starfshópurinn með sex áhugasömum aðilum sem eru að skoða kosti þess að hefja starfsemi á Bakka eða í Norðurþingi. Þó er ljóst að styrkja þarf innviði á ákveðnum sviðum, en það fer allt eftir þeirri starfsemi sem mögulega kemur á svæðið.

„Það er ekki útséð með framtíð PCC á Bakka. Við erum auðvitað enn í virkri hagsmunagæslu þegar kemur að verndarráðstöfunum ESB til dæmis. Það skiptir máli,“ segir forsætisráðherra. „Þarna eru ýmsar góðar tillögur. Ein er sú að ríkið komi inn af festu með sérstökum verkefnastjóra sem haldi utan um vinnu við atvinnuuppbyggingu á svæðinu og fylgi eftir þeim fjárfestingaverkefnum sem eru í skoðun.“

Starfshópurinn setur í skýrslunni fram fimm tillögur að aðgerðum stjórnvalda til skemmri og lengri tíma til að styðja við atvinnuþróun á svæðinu:

  1. Fenginn verði verkefnastjóri sem hefur m.a. það hlutverk að hraða vinnu við þróun nýrra verkefna á Bakka og nýta þá innviði sem eru þegar til staðar. Viðkomandi samhæfi aðgerðir sem styðja við atvinnuþróun og uppbyggingu iðngarðs og markaðssetningu svæðisins. Verkefnisstjórinn njóti liðsinnis frá nýjum verkefnastjóra stórfjárfestinga í forsætisráðuneytinu. Gert er ráð fyrir að ríkið standi undir 80% kostnaðar vegna verkefnastjóra en sveitarfélagið Norðurþing 20%.
  2. Leyfisferlar einfaldaðir þegar kemur að uppbyggingu atvinnu og raforkukerfisins almennt. Komið verði á fót „allt á einum stað“ (e. one stop shop) ferli sem veitir fjárfestum aðstoð og leiðbeiningar. Tillagan gagnast landinu öllu.
  3. Ráðast í og afgreiða með skilvirkum hætti styrkingu flutningskerfis raforku og auka orkuöflun á Norðausturlandi. Tillagan gagnast fleiri svæðum.
  4. Samgöngur og alþjóðatengingar efldar, þ.m.t. hafnarframkvæmdir. Tillagan gagnast stærra svæði. Umfang styrkingu innviða fer þó allt eftir þeim verkefnum sem mögulega eru undir.
  5. Uppbygging á verkefnum sem varða öryggi og varnir sem og áfallaþol samfélagsins á Norðausturlandi verði könnuð sérstaklega.

Í skýrslunni eru ekki lagðar til beinar aðgerðir varðandi PCC á Bakka. Þau mál eru ýmist í ferli hjá stjórnvöldum eða utan verksviðs starfshópsins.

Starfshópurinn átti gott samstarf við sveitarfélagið Norðurþing í vinnu sinni. Í skýrslunni er sérstaklega fjallað um tillögur sveitarfélagsins sem miða að því að verja byggð, styrkja atvinnulíf og skapa forsendur fyrir nýja uppbyggingu.

Atvinnumál á Húsavík og nágrenni – Tillögur starfshóps