17 október 2025

/

Umsækjendur um embætti varaformanns Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála

{image.Description}
Hugi Ólafsson

Átta umsækjendur eru um embætti varaformanns Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, en umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar í september sl.

Umsækjendur eru:

  • Gísli Óskarsson – Sviðsstjóri lögfræðisviðs
  • Ívar Örn Ívarsson - Lögfræðingur
  • Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir – Lögfræðingur
  • Logi Kjartansson - Lögfræðingur
  • Ottó Björgvin Óskarsson - Lögfræðingur Skipulagsstofnunar
  • Rakel Jensdóttir - Lögmaður
  • Sverrir Sigurjónsson - Lögmaður
  • Unnþór Jónsson - Settur varaformaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Valnefnd sem skipuð hefur verið af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra metur hæfni og hæfi umsækjenda og skilar greinargerð til ráðherra.