20 október 2025

/

Forsætisráðherra heimsækir Grænland

{image.Description}
Mynd: iStock
Frá Nuuk.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hélt í dag í opinbera vinnuheimsókn til Grænlands í boði Jens-Frederik Nielsen, formanns grænlensku landsstjórnarinnar. Forsætisráðherra mun funda með formanni landsstjórnarinnar og öðrum ráðamönnum í Nuuk auk þess að heimsækja fyrirtæki og stofnanir.

Í heimsókninni verður rætt um víðtækt samstarf landanna á ýmsum sviðum og leiðir til að efla það enn frekar.