22 október 2025

/

Hafsteinn Dan Kristjánsson nýr formaður refsiréttarnefndar

{image.Description}
iStock

Dómsmálaráðherra hefur skipað í refsiréttarnefnd. Refsiréttarnefnd hefur það hlutverk að vera ráðuneytinu til ráðgjafar á sviði refsiréttar. 

Formaður nefndarinnar er Dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson, prófessor í lögum við Háskólann í Reykjavík, en hann tekur við formennsku af Dr. Svölu Ísfeld Ólafsdóttur.

Auk formannsins taka sæti í nefndinni Daði Kristjánsson héraðsdómari og Hulda Elsa Björgvinsdóttir lögfræðingur. Í nefndinni verða áfram Símon Sigvaldason landsréttardómari og Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari

Helstu verkefni nefndarinnar eru að:

  • Vera dómsmálaráðherra til ráðgjafar um samningu frumvarpa og annarra reglna á sviði refsiréttar,
  • Semja frumvörp og aðrar reglur að beiðni ráðherra á því sviði og í samræmi við áætlun og áherslur ráðherra,
  • Veita umsagnir um frumvörp og aðrar tillögur er varða refsirétt,
  • Fylgjast með þróun á sviði refsiréttar, þar með talið erlendra refsilaga, einkum á Norðurlöndum, og alþjóðlegum viðhorfum á þessu sviði.