23 október 2025
/
Nr. 803/2025 Úrskurður
Hinn 23. október 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 803/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU25060135
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 25. júní 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Venesúela (hér eftir kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. júní 2025, um að synja umsókn hans um að fella úr gildi endurkomubann til Íslands, sbr. 2. málsl. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja beiðni hans um niðurfellingu endurkomubanns verði felld úr gildi.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, ásamt síðari breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 31. desember 2022. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. september 2023, var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákveðið tveggja ára endurkomubann, sbr. 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 698/2024, dags. 27. júní 2024, var ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest. Fram kom í úrskurði kærunefndar að kæranda væri veittur 15 daga frestur til þess að yfirgefa landið og yrði endurkomubannið fellt niður yfirgæfi hann landið innan þess frests. Hinn 26. september 2024, lagði kærandi fram endurtekna umsókn um alþjóðlega vernd, sbr. 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga. Með úrskurði kærunefndar nr. 350/2025, dags. 29. apríl 2025, var umsókninni vísað frá.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum var kæranda fylgt til heimaríkis með heimferða- og fylgdadeild Ríkislögreglustjóra 6. janúar 2025. Með hliðsjón af 4. mgr. 101. gr. laga um útlendinga hófst endurkomubann þann dag og gildir því til 6. janúar 2027. Hinn 5. júní 2025 óskaði kærandi eftir niðurfellingu endurkomubanns síns. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. júní 2025, var beiðni kæranda hafnað. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda samdægurs. Með tölvubréfi, dags. 25. júní 2025, lagði kærandi fram stjórnsýslukæru og greinargerð vegna málsins. Sama dag lagði kærandi fram beiðni um að gildistöku endurkomubannsins yrði frestað á meðan málið væri til meðferðar á kærustigi. Frekari fylgigögn voru lögð fram með tölvubréfi, dags. 30. júní 2025.
Samkvæmt 4. mgr. 101. gr. laga um útlendinga hefst endurkomubann þann dag sem útlendingur er færður úr landi eða fer af sjálfsdáðum af landi brott. Ekki er mælt fyrir um heimild stjórnvalda í lögum um útlendinga til þess að fresta endurkomubanni eða ákveða því annan upphafsdag. Er beiðni kæranda um að fresta gildistöku endurkomubannsins á meðan málið er til meðferðar á kærustigi því hafnað.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð er vísað til beiðni um niðurfellingu endurkomubanns vegna breyttra aðstæðna þar sem hann hafi gengið í hjúskap með íslenskum ríkisborgara. Kærandi hafi ætlað sér að yfirgefa landið sjálfur að fenginni synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og þegið aðstoð við heimför 9. júlí 2024. Hann hafi átt bókað flug 11. ágúst 2024 en ekki látið sjá sig. Kærandi sjái eftir þeirri ákvörðun sem hafi byggst á tilfinningalegri streitu og skilningsleysi á lagalegum afleiðingum þess. Kærandi axli ábyrgð á mistökum sínum. Hann hafi loks yfirgefið landið 6. janúar 2025 og hlítt lögum um útlendinga frá því. Hann óski nú eftir niðurfellingu endurkomubannsins með vísan til 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga vegna breyttra aðstæðna.
Kærandi vísar til mistaka sem hann hafi gert hér á landi. Hann hafi ekki fylgt þeim fyrirmælum sem honum voru sett og sjái eftir því. Hann óski þess að ekki verði litið á hegðun hans sem óvirðingu fyrir lögum heldur misskilning og tilfinningalega togstreitu vegna aðskilnaðar við verðandi maka. Eftir að hafa yfirgefið landið hafi kærandi gengið í hjúskap með íslenskum ríkisborgara en hjónavígsla þeirra fór fram 31. janúar 2025 í heimaríki kæranda. Þau hafi stutt hvort annað, og hafi kærandi einnig tengst börnum maka síns. Aðskilnaðurinn valdi kæranda sársauka en þau reyni að eiga í daglegum samskiptum. Kærandi óski ekki eftir sérmeðferð heldur að litið verði á málið með mannúð og mildi, og virðingu fyrir fjölskyldulífi. Kærandi afneiti ekki mistökum sínum við fyrri dvöl og axli ábyrgð á þeim.
Beiðni kæranda sé byggð á 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga vegna breyttra aðstæðna auk þess sem kærandi vísar til sjónarmiða um meðalhóf. Að mati kæranda sé endurkomubann til ársins 2027 óhóflega íþyngjandi og taki ekki mið af breytingum sem hafi orðið á lífi hans. Myndu leiðir á borð við styttra endurkomubann og tímabundið heimsóknarleyfi ná markmiðum um framkvæmd laga um útlendinga með mildari áhrifum á fjölskyldulíf kæranda. Meðal fylgigagna sem kærandi lagði fram á kærustigi eru hjónavígsluvottorð, dags. 31. janúar 2025, og yfirlýsing maka kæranda, dags. 25. júní 2025.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Í 101. gr. laga um útlendinga er fjallað um áhrif brottvísunar og endurkomubanns. Samkvæmt 2. mgr. ákvæðisins felur brottvísun í sér bann við komu til landsins síðar. Endurkomubannið getur verið varanlegt eða tímabundið en skal að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár. Á grundvelli 3. mgr. 101. gr. er heimilt að fella úr gildi endurkomubann samkvæmt umsókn, hafi aðstæður breyst frá því að ákvörðun um brottvísun var tekin.
Ákvæði 101. gr. laga um útlendinga tók nokkrum breytingum með lögum um landamæri nr. 136/2022, sbr. 25. gr. breytingalaganna. Fram kemur í athugasemdum við breytingalögin að í kjölfar úttektar á þátttöku Íslands í Schengen-samstarfinu hafi verið gerðar breytingar á efni 101. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun um endurkomubann falli niður yfirgefi útlendingur Schengen-svæðið innan þess frests sem honum er veittur til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Þyki það eðlileg ráðstöfun í ljósi meðalhófs. Jafnframt verði ekki heimilt að fella niður endurkomubann fyrr en að tveimur árum liðnum frá því að endurkomubann tók gildi til samræmis við síðari málsl. 3. mgr. 101. gr. laganna.
Í athugasemdum við 3. mgr. 101. gr. í frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að heimild til að fella niður endurkomubann sé í samræmi við 3. mgr. 11. gr. tilskipunar 2008/115/EB um brottvísun útlendinga í ólögmætri dvöl, en ákvæðið veitir m.a. heimild til að fella úr gildi endurkomubann á grundvelli mannúðarástæðna. Tilskipunin geri þó ekki nánari grein fyrir því hvaða tilvik falli undir mannúðarástæður en ljóst sé að ríkjunum sé veitt svigrúm til túlkunar og mats á þeim aðstæðum sem fyrir hendi séu hverju sinni. Í 3. mgr. 11. gr. tilskipunar 2008/115/EB segir m.a. að aðildarríki skuli taka til skoðunar hvort draga skuli til baka endurkomubann ef einstaklingur hefur yfirgefið Schengen-svæðið í fullu samræmi við ákvörðun þar að lútandi. Þá segir að aðildarríki geti á grundvelli mannúðarsjónarmiða tekið ákvarðanir um að veita ekki endurkomubann, draga endurkomubann til baka og heimila einstaklingi sem hefur verið vísað brott að heimsækja landið án þess að endurkomubann falli úr gildi. Í ákvæðinu segir jafnframt að aðildarríki geti dregið til baka endurkomubann í einstökum málum eða flokkum mála á öðrum grundvelli.
Eins og áður greinir felur 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga í sér heimild til að fella úr gildi endurkomubann. Í samræmi við orðalag ákvæðisins getur brottfall eingöngu komið til greina hafi aðstæður breyst frá því að ákvörðun um brottvísun var tekin.
Með úrskurði kærunefndar nr. 698/2024, dags. 27. júní 2024, var kæranda brottvísað og ákveðið endurkomubann til landsins í tvö ár á grundvelli 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga en úrskurðurinn var birtur fyrir kæranda samdægurs. Kæranda var jafnframt veittur 15 daga frestur til þess að yfirgefa landið og yrði endurkomubannið fellt niður yfirgæfi hann landið innan þess frests, sbr. 2. mgr. 104. gr., sbr. og 1. málsl. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Kærandi yfirgaf landið ekki sjálfviljugur innan veitts frests. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum var hann fluttur til heimaríkis með atbeina heimferða- og fylgdadeildar Ríkislögreglustjóra, 6. janúar 2025. Er kærandi því í endurkomubanni til 6. janúar 2027.
Líkt og fram kemur í 2. málsl. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga, eins og ákvæðinu var breytt með lögum um landamæri, má fella úr gildi endurkomubann hafi aðstæður breyst frá því ákvörðun um brottvísun var tekin en þó ekki fyrr en að tveimur árum liðnum frá því endurkomubann tók gildi. Þó fallast megi á það með kæranda að aðstæður hans hafi tekið breytingum frá því að ákvörðun um brottvísun var tekin, með hliðsjón af hjúskap hans, koma þær breytingar ekki til skoðunar, enda lagatexti um að endurkomubann verði ekki fellt úr gildi fyrr en að tveimur árum liðnum án undantekninga. Ekki eru liðin tvö ár frá því að endurkomubann kæranda tók gildi og er því samkvæmt framangreindu ekki heimilt að fella það niður á grundvelli síðastnefnds lagaákvæðis.
Að öllu framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir Vera Dögg Guðmundsdóttir