23 október 2025

/

Nr. 804/2025 Úrskurður

Hinn 23. október 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 804/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU25060205

 

Kæra [...]

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 29. júní 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 29. júní 2025, um frávísun frá Íslandi.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði heimiluð koma til landsins.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom til Íslands 28. júní 2025, með flugi frá Búdapest, Ungverjalandi. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 29. júní 2025, var kæranda vísað frá landinu.

Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kæranda hafi verið frávísað frá Íslandi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum kemur fram að kærandi hafi ekki getað leitt líkur að tilgangi dvalar sinnar. Samkvæmt skýrslu lögreglu, dagsett sama dag, hafi kærandi verið í skoðun hjá tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli. Lögregla hafi verið kölluð til en vegna tungumálaörðugleika hafi hún boðið kæranda til viðtals í aðstöðu lögreglu. Kæranda var kynntur réttur sinn til að leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi greint frá því að hann væri kominn til landsins til þess að skoða kirkjur og fara í gufuböð. Aðspurður hafi hann þó ekki getað tilgreint neinar kirkjur sem hann vildi skoða og ekki viljað veita lögreglu nánari upplýsingar um dvöl sína. Kærandi hafi sagt allar upplýsingar vera í farsíma sínum án þess að sýna fram á það. Hann hafi ætlað að dvelja á Íslandi til 2. júlí 2025 en kvaðst þó ekki muna á hvaða hóteli hann myndi gista. Aðspurður væri kærandi að ferðast til útlanda í fyrsta skipti og hafi Ísland orðið fyrir valinu sökum kalds loftslags. Hann kvaðst ekki þekkja neinn á Íslandi. Aðspurður kvaðst kærandi starfa við pípulagningar í heimaríki og gerði lögreglu grein fyrir tekjum sínum. Fram kemur að lögreglu hafi grunað að kærandi bæri fíkniefni innvortis og var hann fluttur í röntgenmyndatöku en ekki fundust fíkniefni við myndatökuna.

Þar sem tilgangur dvalar kæranda var óljós auk þess sem hann virtist ekki vita hvað hann ætlaði að gera á landinu og gat ekki sýnt fram á það hafi kæranda verið frávísað á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kærði ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 29. júní 2025. Með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 15. júlí 2025, var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga. Greinargerð kæranda barst 24. september 2025. Gögn frá lögreglu vegna málsins bárust kærunefnd 19. ágúst 2025.

III.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er vísað til ákvörðunar og skýrsluskrifa lögreglu. Kærandi mótmælir því að hann hafi ekki leitt nægar líkur að tilgangi dvalar. Hann hafi haft nægt fjármagn og hafi sýnt fram á gildan farmiða úr landi að nýju. Hvergi í gögnum málsins komi fram að lögregla hafi rannsakað hvort kærandi hefði greiðslukort sem veitti honum aðgengi að reiðufé. Kærandi vísar til orðalags c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga og byggir á því að lögregla hafi ekki rannsakað með fullnægjandi hætti ferðatékka og greiðslukort í fórum hans auk þess sem hann hafi verið tilbúinn að sýna fram á gögn sem sýni með skýrum hætti fram á dvalarstað og uppihald á meðan fyrirhugaðri dvöl stæði. Krefjist kærandi því að ákvörðunin verði felld úr gildi. Vísar kærandi til þess að rannsókn lögreglunnar hafi tekið um 30 mínútur og telur að í ljósi verulegra annmarka rannsóknarinnar beri að fella ákvörðunina úr gildi og heimila kæranda landgöngu.

IV.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi, sem ekki þarf vegabréfsáritun til landgöngu, heimilt að dveljast hér á landi í 90 daga frá komu til landsins. Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu telst jafngilda dvöl hér á landi. Kærandi er ríkisborgari Albaníu og þarf því ekki vegabréfsáritun til landgöngu hér á landi, enda sé hann handhafi vegabréfs með lífkennum.

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 29. júní 2025, byggir á c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017.

Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt ákvæðinu er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri (Schengen landamærareglurnar). Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 5. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að vísa útlendingi frá landi eftir reglum 1. mgr. þótt sjö sólarhringa fresturinn sé liðinn. Þó verður meðferð máls að hefjast innan níu mánaða frá komu hans til landsins. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.

Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins. Eru skilyrðin eftirfarandi: Að framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Má ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Má ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.

Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða. Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kæranda hafi verið frávísað frá Íslandi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í skýrslu lögreglu kemur fram að kærandi hafi greint frá því að vera kominn til landsins sem ferðamaður í þrjá daga. Aðspurður hafi kærandi ætlað að skoða kirkjur og fara í gufuböð. Hann hafi þó gert takmarkaða grein fyrir fyrirhugaðri dvöl sinni og ekki viljað veita lögreglu nánari upplýsingar. Þá hafi kærandi ekki getað gert grein fyrir gististað sínum. Aðspurður kvað kærandi allar upplýsingar vera vistaðar á farsíma hans en hann hafi þó ekki getað sýnt fram á það, þrátt fyrir fyrirspurnir lögreglu. Meðal meginskilyrða 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, er framlagning gagna sem sýna fram á tryggt húsnæði. Kærandi hafi ekki getað sýnt fram á framangreint og er skilyrðum reglugerðarákvæðisins því ekki fullnægt. Með vísan til framangreinds hefur kærandi ekki getað leitt líkur að þeim tilgangi sem hann gaf upp fyrir dvölinni. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.

Kærandi telur að lögregla hafi ekki rannsakað málið með nægjanlegum hætti varðandi fjárráð kæranda, t.a.m. í formi greiðslukorta og ferðatékka, auk þess sem hann gerir athugasemd við skjóta úrvinnslu við töku ákvörðunarinnar. Ljóst er að ákvörðunin byggðist á c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, en ekki d-lið sama ákvæðis sem fjallar um fjárráð. Þá verður ekki séð að skjót úrvinnsla málsins, um fjórir og hálfur klukkutími, hafi haft áhrif á niðurstöðu málsins. Er ekki ástæða til þess að gera athugasemdir við framangreind atriði í málsmeðferð lögreglu í máli kæranda.

Að öllu framangreindu virtu er hin kærða ákvörðun um frávísun kæranda staðfest.

Athugasemdir við störf lögreglu 

Hin kærða ákvörðun fjallar um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í ákvörðuninni kemur fram að kæranda væri vísað frá landinu á þeim lagagrundvelli sem hér hefur verið fjallað um að framan. Að öðru leyti kom ekki fram í ákvörðuninni hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirrar niðurstöðu eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við töku ákvörðunarinnar að undanskildum þeim athugasemdum sem koma fram í ákvörðuninni um að kærandi hafi ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar. Verður því að líta svo á að hinni kærðu ákvörðun hafi ekki fylgt rökstuðningur í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Bar því að leiðbeina kæranda um þá heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga að fá slíkan rökstuðning eftir á. Í hinni kærðu ákvörðun var ekki fyrir að finna slíkar leiðbeiningar. Að þessu leyti var hin kærða ákvörðun ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Framangreindur annmarki hefur þó ekki áhrif á niðurstöðu málsins.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum er staðfest.

The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is affirmed.

 

 

Valgerður María Sigurðardóttir                               Vera Dögg Guðmundsdóttir