24 október 2025
/
1307/2025. Úrskurður frá 24. október 2025
Hinn 24. október 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1307/2025 í máli ÚNU 25090014.
Kæra og málsatvik
Með erindi, dags. 18. september 2025, kærði […], fulltrúi í hreppsnefnd Skorradalshrepps, til úrskurðarnefndar um upplýsingamál að Skorradalshreppur hefði ekki afgreitt beiðni hans um gögn.
Á fundi hreppsnefndar Skorradalshrepps, dags. 13. ágúst 2025, lagði kærandi fram bókun þar sem hann óskaði eftir að fá öll gögn um samskipti varðandi sameiginlega kjörstjórn Skorradalshrepps og Borgarbyggðar vegna framkvæmdar íbúakosninga um sameiningu við Borgarbyggð. Á sama fundi lagði kærandi fram viðbótarbókun. Í henni óskaði hann eftir öllum gögnum um vinnu samstarfsnefndar Skorradalshrepps og Borgarbyggðar. Einnig óskaði hann eftir öllum gögnum frá KPMG sem safnast hefðu á almennum íbúafundum og samskipti á milli KPMG og samstarfsnefndarinnar. Loks óskaði hann eftir öllum samskiptum á milli Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og innviðaráðuneytis við fulltrúa í samstarfsnefndinni og embættismenn Borgarbyggðar.
Á fundi hreppsnefndarinnar, dags. 20. ágúst 2025, lagði kærandi fram bókun þar sem hann óskaði eftir kostnaðar- og tekjuyfirliti annars vegar vegna óformlegra og hins vegar formlegra sameiningarviðræðna Borgarbyggðar og Skorradalshrepps frá upphafi fram til 20. ágúst 2025. Einnig óskaði hann eftir afriti af öllum reikningum og fylgiskjölum þeirra. Loks óskaði hann eftir kostnaðaráætlun vegna sameiningarkosninganna.
Í fundargerð af fundi hreppsnefndar Skorradalshrepps, dags. 4. september 2025, var það bókað að afgreiðsla gagnabeiðna kæranda yrði unnin eins fljótt og hægt væri og svör myndu berast jafnskjótt og hver aðili hefði tekið saman þau gögn sem beiðnin næði til.
Niðurstaða
Mál þetta varðar beiðnir kæranda um aðgang að gögnum, sem lagðar voru fram á fundi hreppsnefndar Skorradalshrepps, og hafa ekki verið afgreiddar. Ljóst er að kærandi er nefndarmaður í hreppsnefndinni.
Í 28. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, er mælt fyrir um rétt sveitarstjórnarmanna til aðgangs að gögnum og upplýsingum og þagnarskyldu sem á þeim hvílir:
Vegna starfa sinna í sveitarstjórn á sérhver sveitarstjórnarmaður rétt á að kynna sér gögn og upplýsingar sem fyrir liggja í stjórnsýslu sveitarfélags og varða málefni sem komið geta til umfjöllunar í sveitarstjórn.
Sveitarstjórnarmaður skal eiga eðlilegan aðgang að skrifstofu og stofnunum sveitarfélagsins í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi sveitarfélagsins og rekstur.
Sveitarstjórn skal í samþykkt um stjórn sveitarfélags mæla nánar fyrir um rétt sveitarstjórnarmanna til að fá afhent afrit gagna sem falla undir 1. mgr. og um fyrirkomulag og framkvæmd aðgangs að skrifstofu og stofnunum sveitarfélags skv. 2. mgr.
Sveitarstjórnarmenn skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt ákvæðum X. kafla stjórnsýslulaga.
Skorradalshreppur hefur útfært rétt sveitarstjórnarmanna til aðgangs að gögnum í 21. gr. samþykktar um stjórn sveitarfélagsins, nr. 250/2025. Er þar meðal annars í 3. mgr. kveðið á um að óski sveitarstjórnarfulltrúi gagna sem liggja fyrir í stjórnsýslu sveitarfélagsins skuli beina því til oddvita sem annast milligöngu um öflun þeirra og skal afgreiða slíka beiðni eins skjótt og unnt er.
Samkvæmt 1. mgr. 109. gr. sveitarstjórnarlaga hefur ráðherra eftirlit með því að sveitarfélög gegni skyldum sínum samkvæmt lögunum og öðrum löglegum fyrirmælum. Samkvæmt 1. mgr. 111. gr. laganna er aðila máls heimilt að kæra til ráðuneytisins ákvarðanir um rétt eða skyldu manna sem lúta eftirliti þess samkvæmt 109. gr. laganna.
Kærandi er nefndarmaður í hreppsnefnd Skorradalshrepps. Ákvæði 28. gr. sveitarstjórnarlaga veita honum rýmri rétt en hann hefur samkvæmt ákvæðum upplýsingalaga til aðgangs að gögnum og upplýsingum sem fyrir liggja í stjórnsýslu Skorradalshrepps og varða málefni sem komið geta til umfjöllunar í sveitarstjórn. Það er mat úrskurðarnefndarinnar að ákvæðið beri að skoða í þessu samhengi sem sérákvæði gagnvart almennum ákvæðum upplýsingalaga um upplýsingarétt almennings. Af því leiðir að ákvarðanir Skorradalshrepps um afgreiðslu beiðna kæranda verða ekki kærðar til úrskurðarnefndar um upplýsingamál heldur til þess ráðherra sem fer með málefni sveitarfélaga, sbr. 1. mgr. 111. gr. laganna. Hið sama á við í þeim tilvikum þegar afgreiðsla máls dregst óhæfilega, sbr. 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, enda verður það kært til þess stjórnvalds sem ákvörðun í málinu verður kærð til. Verður því að vísa kæru þessari frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Úrskurðarorð
Kæru […], dags. 18. september 2025, er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir