27 október 2025
/
Embætti forstöðumanns Náttúruminjasafns Íslands laust til umsóknar
Náttúruminjasafn Íslands er höfuðsafn á sviði náttúrufræða. Hlutverk Náttúruminjasafns Íslands er að varpa ljósi á náttúru Íslands, náttúrusögu landsins, nýtingu náttúruauðlinda og náttúruvernd, auk þess að varpa ljósi á samspil manns og náttúru og á náttúru landsins í alþjóðlegu samhengi. Um frekara hlutverk og starfsemi safnsins vísast til ákvæða laga um Náttúruminjasafn Íslands, nr. 35/2007.
Helstu verkefni og ábyrgð
Náttúruminjasafn Íslands stendur nú á tímamótum en fyrir liggur að safnið mun á næstu misserum hefja starfsemi í nýju húsnæði að Safnatröð á Seltjarnarnesi þar sem stefnt er að opnun nýrrar grunnsýningar. Að auki liggur fyrir að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti kanna nú möguleika á sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar. Talsverð skörun er á starfsemi þessara tveggja stofnana og því mikil tækifæri til rekstrarlegrar og faglegrar samlegðar, ekki síst með aukinni samþættingu rannsókna á náttúru Íslands, vöktunar og miðlunar upplýsinga til samfélagsins. Nýr safnstjóri Náttúruminjasafnsins þarf að vera tilbúinn til að leiða safnið í gegnum fyrirséðar breytingar á starfsemi og umbóta í rekstri þess.
Hæfniskröfur
Safnstjóri leiðir starfsemi safnsins og annast daglegan rekstur og stjórn þess, undirbýr starfs- og fjárhagsáætlun og stýrir mannauði. Safnstjóri er ábyrgur gagnvart ráðherra fyrir fjárhagslegum rekstri og starfsemi safnsins. Að auki þarf nýr safnstjóri að leiða safnið í gegnum fyrirséðar breytingar á rekstri og mögulega sameiningu. Í samræmi við 1. mgr. 5. gr. laga nr. 35/2007, um Náttúruminjasafn Íslands, skulu umsækjendur hafa háskólamenntun og staðgóða þekkingu á starfssviði safnsins. Gerð er krafa um reynslu af rekstri og stjórnun, leiðtogahæfni og færni í mannlegum samskiptum. Reynsla úr umhverfi opinbera fjármála er æskileg sem og reynsla af stjórnun breytinga. Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er skilyrði. Við mat á umsækjendum er horft til kjörmyndar stjórnenda út frá stjórnendastefnu ríkisins.
Frekari upplýsingar um starfið
Um launakjör fer samkvæmt 39. gr. a laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra skipar í embætti forstöðumanns Náttúruminjasafns Íslands, safnstjóra, til fimm ára frá og með 1. janúar 2026 á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Embættismaður skal vera íslenskur ríkisborgari samkvæmt 2. mgr. 20. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.
Sótt er um starfið á Starfatorgi. Ítarleg ferilskrá og kynningarbréf skulu fylgja umsóknum og er starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 14.11.2025
Nánari upplýsingar veitir
Sigrún Brynja Einarsdóttir, ráðuneytisstjóri
Tölvupóstur: [email protected]
Sími: 5459600