27 október 2025
/
Markáætlun um náttúruvá - opið fyrir umsóknir til 6. nóvember
Verkefni sem efla þekkingu og bæta getu til að spá fyrir um náttúruvá, þ.á.m. eldgos, jarðskjálfta, snjóflóð, aurskriður, jökulhlaup, fárviðri, kulda og flóð í sjó, ám og vötnum, gróðurelda eða smitfaraldra.
Verkefni sem efla viðbragðsþol (e. resilience) gagnvart náttúruvá. Undir þennan flokk falla m.a. verkefni sem lúta að forvörnum, eftirfylgni, mótvægis- og aðlögunaraðgerðum, áhættustýringu, samfélags-, heilsufars- og menningarlegum áhrifum náttúruvár og stefnu-mótun.
Hverjir geta sótt um?
Háskólar, stofnanir og fyrirtæki geta sótt um styrki úr Markáætlun um náttúruvá. Umsóknum í sjóðinn er skilað inn í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís.
Markáætlun veitir styrki samkvæmt þeim áherslum sem eru skilgreindar fyrir sjóðinn, og á grundvelli faglegs mats á gæðum verkefna, hversu víðtækt verkefnið er, þörf á afurðum verkefnisins, færni þeirra einstaklinga sem stunda rannsóknirnar og aðstöðu þeirra til að sinna verkefninu.
Sendið fyrirspurnir til Markáætlun á netfangið: [email protected]