28 október 2025
/
Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um úrvinnslugjald birt í Samráðsgátt
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda frumvarp um breytingu á lögum um úrvinnslugjald. Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um úrvinnslugjald nr. 162/2002. Tilgangur þess er að tryggja að álagning úrvinnslugjalda sé sem réttust til að standa undir kostnaði við úrvinnslu umbúðaúrgangs og til að endurspegla eins og unnt er raunverulegt magn umbúða sem úrvinnslugjald er lagt á.
Í frumvarpinu er skýrar kveðið á um greinarmuninn á úrvinnslugjaldi ökutækja, sem nær til ábyrgðar framleiðenda og innflytjenda á úrvinnslu ökutækis, og hins vegar á skilagjaldi ökutækja. Jafnframt er kveðið skýrar á um hlutverk úrvinnslugjaldsins í því að ná tölulegum markmiðum í samræmi við skyldur Úrvinnslusjóðs.
Á seinustu þremur árum hafa verið gerðar breytingar á tollskránni með auglýsingum, um breytingu á viðauka I við tollalög. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á tollskrárnúmerum og uppfærsla á viðaukum við lögin þessu til samræmis.
Með frumvarpinu eru einnig í ljósi reynslunnar lagðar til uppfærslur á reiknilíkani viðauka XVIII við lögin. Uppfærslurnar miða að því að fjölga valmöguleikum fyrir meginsöluumbúðir tiltekinna tollskrárnúmera ásamt því að gera viðeigandi lagfæringar á hlutfallstölum. Markmiðið er að tryggja að álagning úrvinnslugjalds nái til flutningsumbúða þegar vörur eru ekki seldar í sérstökum söluumbúðum og í tilviki skilagjaldsskyldra drykkjarvöruumbúða sem bera ekki úrvinnslugjald. Þá er gerð tillaga um að ákvæði til bráðabirgða V verði framlengt og uppfært með hliðsjón af breytingum á tollskrá.
Athygli er vakin á því að umsagnarfrestur vegna frumvarpsins í Samráðsgátt stjórnvalda er til 7. nóvember 2025.
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald