29 október 2025
/
Áætluð framlög vegna samþættingar í þjónustu við farsæld barna fyrir árið 2026
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætluð framlög til að mæta kostnaði sveitarfélaga vegna samþættingar í þjónustu farsældar barna sbr. 13. gr. laga nr. 56/2025 um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Samtals eru áætluð framlög árið 2026 að fjárhæð 1.044,2 m.kr.
Úthlutun framlaganna er á grundvelli eftirfarandi breytna fyrir hvert og eitt sveitarfélag sem allar hafa jafnt vægi og byggja á upplýsingum frá Hagstofu Íslands.
- Fjöldi barna í hverju sveitarfélagi.
- Fjöldi barna með stuðning í leik- og grunnskóla.
- Fjöldi barna á lágtekjuheimilum.
- Fjöldi barna af erlendum uppruna.
Framlögin verða enduráætluð í byrjun árs 2026 þegar uppfærð gögn berast frá Hagstofu Íslands um fjölda barna með stuðning í leik- og grunnskólum sem og fjölda barna á lágtekjuheimilum.