04 nóvember 2025

/

Framsækið þróunarverkefni um nýtingu gervigreindar í íslensku menntakerfi

{image.Description}

Gervigreind tveggja leiðandi fyrirtækja á heimsvísu verður notuð í þróunarverkefni sem kanna mun nýtingu og gagnsemi hennar í íslensku skólastarfi undir leiðsögn íslenskra kennara. Verkefnið er nú að hefjast og er markmið þess að styðja við kennara, ráðgjafa og skólastjórnendur í notkun gervigreindar við kennslu.

Samhliða er unnið að viðmiðum um notkun gervigreindar í skólastarfi sem munu m.a. byggja á niðurstöðum þróunarverkefnisins.

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur gert samstarfssamning við tvö leiðandi fyrirtæki á sviði gervigreindar: Anthropic og Google. Þróunarverkefnið er unnið af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu í samstarfi við Kennarasamband Íslands. Miðstöðin hefur boðið sex hundruð kennurum um allt land aðgang að tveimur af nýjustu gervigreindartólunum, Claude for education frá Anthropic og Gemini innan Google Classroom. Aðgangurinn nýtist til undirbúnings fyrir kennslu og mun fylgja honum námsefni, fræðsluefni og sérstakt stuðningsnet.

Um metnaðarfullt þróunarverkefni er að ræða, eitt fyrsta sinnar tegundar á heimsvísu, þar sem tvö af fremstu gervigreindartólum heims eru prófuð til að kanna hvernig gervigreind getur nýst íslenskum kennurum við kennslu og undirbúning. Íslenskir kennarar munu byggja á eigin reynslu og þekkingu í verkefninu auk þess að fá einstakt aðgengi að fræðslu um notkun gervigreindartóla og beinan stuðning frá erlendu fyrirtækjunum til að auðvelda þeim að tileinka sér þessi einstöku tól. Báðir aðilar bjóða upp á greiningu á nytsemi í raunverulegum kennsluaðstæðum.

Reynsla þátttakenda mun hjálpa Miðstöð menntunar að styðja kennara enn betur og veita dýrmæta innsýn í það hvernig nota megi gervigreind í skólastarfi. Því má segja að með þátttöku séu íslenskir kennarar að leggja sitt af mörkum í að kenna gervigreindinni og móta framtíð hennar í skólastarfi. Hægt er að nota tólin á ýmsan hátt við undirbúning kennslu, t.d. til að aðstoða við að samþætta námsefni við aðalnámskrá, aðstoða við gerð kennsluáætlana og til þess að auðvelda kennurum að vinna með námsefni þannig að það mæti ólíkum þörfum nemenda.

Lögð verður áhersla á að þróa lausnir sem styðja við einstaklingsmiðað nám nemenda og sömuleiðis við íslenska tungu og menningu, og að gögn verði vistuð og meðhöndluð í fullu samræmi við persónuverndarlög.

„Gervigreindin er komin til að vera. Hún þróast á ógnarhraða og er mikilvægt að beisla mátt hennar en á sama tíma að fyrirbyggja skaðsemi. Hún mun hafa áhrif á menntun rétt eins og aðrar greinar. Hér tökum við stökkið og ráðumst í metnaðarfullt verkefni sem ætlað er að skoða nýtingu gervigreindar á ýmsum sviðum menntunar með þarfir kennara að leiðarljósi, undir miðlægri yfirsýn Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu sem hefur einmitt það hlutverk að styðja við kennara okkar og skóla. Ég hlakka til að sjá útkomu þróunarverkefnisins og ræða framhaldið,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra.

Ef verkefnið skilar þeim árangri sem að er stefnt er markmiðið að fleiri skólar fái aðgang að kerfunum á breiðari grundvelli og í samvinnu við sveitarfélög og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

Samhliða er vinna hafin verið gerð viðmiða um notkun gervigreindar í skólastarfi. Viðmiðin munu m.a. byggja á niðurstöðum þróunarverkefnisins og verða gefin út fyrir kennara, ráðgjafa og skólastjórnendur til að hafa að leiðarljósi við notkun gervigreindar í skólastarfi. Ætlunin er að nýta á uppbyggilegan hátt nýjustu tækniframfarir og á sama tíma fyrirbyggja skaðsemi af völdum þeirra, ásamt því að vernda íslenska tungu og viðkvæmar persónuupplýsingar.