05 nóvember 2025
/
Mál nr. 8/2025. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála_b.
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 19. ágúst 2025
í máli nr. 8/2025:
Papco hf.
gegn
Fjársýslu ríkisins,
SRX hf.,
Tandur hf. og
Rekstrarvörur ehf.
Lykilorð
Aðgangur að gögnum.
Útdráttur
Í ákvörðun kærunefndar útboðsmála var ekki tekin afstaða til kröfu kæranda um aðgang að tilteknu skjali þar sem hann hafði þegar fengið aðgang að skjalinu.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 29. mars 2025 kærði Papco hf. (hér eftir „kærandi“) útboð Fjársýslu ríkisins (hér eftir „varnaraðili“) nr. 22136 auðkennt „FA Cleaning supplies“.
SRX hf. lagði fram síðari athugasemdir sínar í málinu 12. júní 2025 og krafðist þess að trúnaðar yrði gætt um hluta framlagðra fylgiskjala, sbr. 9. gr. starfsreglna kærunefndar útboðsmála frá 10. mars 2022. Á meðal þeirra fylgigagna sem krafist var trúnaðar um var fylgiskjal 4 sem hefur að geyma tölvupóstssamskipti milli SRX hf. og varnaraðila frá 26. febrúar 2025 varðandi „bréfpoka 45L“. Með tölvupósti 3. júlí 2025 óskaði kærandi eftir aðgangi að þessum samskiptum. Kærunefnd útboðsmála kynnti beiðnina fyrir SRX hf. með tölvupósti 4. júlí 2025 og gaf félaginu kost á að rökstyðja nánar ástæðu þess að gæta skyldi trúnaðar um fylgiskjalið. Engin viðbrögð bárust frá SRX hf.
Umbeðin samskipti hafa verið lögð fram tvívegis í málinu, annars vegar sem fylgiskjal 18 með greinargerð varnaraðila, dags. 11. apríl 2025, og hins vegar sem fyrrgreint fylgiskjal 4 með síðari athugasemdum SRX hf. Af hálfu varnaraðila var þess ekki krafist að trúnaðar yrði gætt um fylgiskjalið, líkt og nauðsynlegt hefði verið ef ætlunin hefði verið sú, sbr. 9. gr. fyrrgreindra starfsreglna nefndarinnar. Af þeim sökum var ekkert sem gaf kærunefnd útboðsmála tilefni til að ætla að einhver gögn frá varnaraðila ættu ekki erindi til kæranda, líkt og meginregla 1. mgr. 15. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 stendur til. Kærunefnd útboðsmála afhenti af þessum sökum kæranda greinargerð varnaraðila ásamt öllum fylgigögnum með tölvupósti 25. júní 2025.
Samkvæmt framangreindu hefur kærandi þegar fengið aðgang að umbeðnu skjali og er því þarflaust í ákvörðun þessari að taka afstöðu til réttar kæranda til aðgangs að skjalinu.
Ákvörðunarorð:
Ekki er tekin afstaða til kröfu kæranda, Papco hf., um aðgang að samskiptum milli SRX hf. og varnaraðila frá 26. febrúar 2025 varðandi „bréfpoka 45L“.
Reykjavík, 19. ágúst 2025.
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir