05 nóvember 2025

/

Ráðherra ræddi málin við MR-inga

{image.Description}
Trausti Þorgeirsson
Nemendur við Menntaskólann í Reykjavík ræddu í morgun við dómsmálaráðherra um stjórnarfar og stjórnmál

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra var í morgun gestur í valáfanga í lögfræði hjá nemendum á síðasta námsári við Menntaskólann í Reykjavík. Til umræðu var Stjórnarskrá lýðveldisins, munurinn á því að vera þingmaður og ráðherra og samspil meiri- og minnihluta á Alþingi. Þorsteinn Davíð Stefánsson, sérfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis, kennir áfangann.

Nemendur voru áhugasamir og duglegir að spyrja spurninga, m.a. um bakgrunnsskoðanir útlendinga og hvort breyta ætti lögum um veðmálastarfsemi. Þá var skipun dómara einnig rædd og sjálfstæði dómstóla. 

„Það var gaman að heimsækja minn gamla skóla og finna fyrir áhuga menntskælinga á stjórnarfari og stjórnmálum á Íslandi. Þá er augljóst að tilefni sé til að dýpka umræðuna um útlendingamál enn frekar. Áhugaverðar umræður spunnust og það var gott að heyra sjónarmið menntaskólanema.“

Nemendur voru áhugasamir eins og sjá má