05 nóvember 2025
/
Skrifað undir samkomulag við Tékkland vegna Uppbyggingarsjóðs EES
Skrifað var undir samkomulag um nýtt framkvæmdatímabil Uppbyggingarsjóðs EES 2021-2028 milli Íslands, Liechtenstein og Noregs annars vegar og Tékklands hins vegar við hátíðlega athöfn í Prag í gær. Með undirritun samkomulagsins hefst nú undirbúningur úthlutana úr sjóðnum í Tékklandi fyrir nýja tímabilið.
Það var Ágúst Már Ágústsson, varamaður sendiherra Íslands gagnvart Tékklandi (með aðsetur í Þýskalandi), sem undirritaði samkomulagið í gær fyrir hönd Íslands. Markmið Uppbyggingarsjóðs EES er að stuðla að félagslegri og efnahagslegri samheldni innan Evrópu, og efla tvíhliða tengsl milli gjafríkjanna, Íslands, Liechtenstein og Noregs, og þeirra fimmtán ríkja Evrópusambandsins sem njóta stuðningsins. Rannís mun gegna hlutverki sérstaks samstarfsaðila í tveimur áætlunum sjóðsins í Tékklandi, á sviðum rannsókna og nýsköpunar annars vegar og menningar hins vegar.
Samstarf Íslands og Tékklands á grundvelli Uppbyggingarsjóðsins byggir á traustum grunni sem lagður var á fyrri sjóðstímabilum.