06 nóvember 2025
/
Heilbrigðisráðherra sótti fund Evrópudeildar WHO
Heilsa og vellíðan barna, aðgerðir til að sporna við ofbeldi gegn konum og börnum og nýsköpun á sviði lýðheilsu voru meðal áhersluverkefna sem fjallað var um á fundi Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem haldinn var í Kaupmannahöfn í lok október. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra sótti fundinn þar sem samþykkt var aðgerðaáætlun Evrópuskrifstofunnar til ársins 2030 (Second European Programme of Work 2026-2030). Áætlunin birtir forgangsröðun í heilbrigðismálum og sameiginlegar aðgerðir til að tryggja, efla og vernda heilsu fyrir alla og undirbúa heilbrigðiskerfi fyrir áskorunum framtíðarinnar.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin starfar á heimsvísu en starfið er skipulagt í gegnum sex svæðisskrifstofur sem hver og ein fer með stjórnun á sínu svæði. Evrópuskrifstofan er ein þeirra og vinnur með samstarfsaðilum að lýðheilsu á svæðinu. Framkvæmdastjóri Evrópuskrifstofunnar er Dr. Hans Kluge. Dr. Kluge hefur nokkrum sinnum heimsótt Ísland í tengslum við störf skrifstofunnar og kynnt sér verkefni á sviði lýðheilsu hér á landi. Sérstaka athygli hefur vakið vinna við innleiðingu á samræmdu verklagi fyrir þolendur heimilisofbeldis á landsvísu sem hófst á Landspítala 2022. Aðgerðir til að sporna við ofbeldi gegn konum og stúlkum er sérstakt áhersluverkefni í aðgerðaáætlun Evrópuskrifstofunnar og á fundinum tók Alma þátt í pallborðumræðum um málefnið á fundinum.
Auk aðgerðaáætlunar WHO 2026-2030 var á fundinum fjallað um drög að nýrri stefnu um heilsu og vellíðan barna og unglinga fyrir Evrópu, sem þróuð hefur verið í samvinnu við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF). Fundurinn samþykkti stefnuna. Einnig var fjallað um drög að stefnu um hvernig beisla megi nýsköpun á sviði lýðheilsu og drög að stefnu um að efla ævilanga heilsu og vellíðan í Evrópu. Þessi stefnudrög sem fela í sér verkefni og aðgerðir til ársins 2030 voru samþykkt.
Ásta Valdimarsdóttir kjörin formaður fastanefndar Evrópuskrifstofunnar
Undir Evrópuskrifstofu WHO starfar fastanefnd (Standing Committee of the Regional Committee for Europe (SCRC)). Nefndin hefur eftirlits- og ráðgjafarhlutvek og tryggir að ákvarðanir og stefnur Evrópuskrifstofunnar séu framkvæmdar, auk þess að vera bæði henni og framkvæmdastjóra til ráðgjafar. Fulltrúar aðildarríkja Evrópuskrifstofu WHO fjölluðu á fundi um tilnefningar til setu í stjórnun og nefndum stofnunarinnar. Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu var kjörin formaður fastanefndarinnar en hún gegndi á liðnu ári stöðu varaformanns. Ásta tók þátt í að undirbúa og skipuleggja fundinn fór með fundarstjórn þegar kosið var til fastanefndar og stýrinefndar WHO.