06 nóvember 2025
/
Ísland meðal ríkja sem kalla eftir sérstökum aukafundi um Súdan í mannréttindaráðinu
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman á sérstökum aukafundi 14. nóvember til að fjalla um alvarlega stöðu mannréttinda í El Fasher og nágrenni í tengslum við innanlandsátökin í Súdan. Ísland var meðal 23 aðildarríkja ráðsins sem kölluðu eftir því að fundurinn verði haldinn.
“Það er tímabært að halda aukafund í mannréttindaráðinu til að fjalla um þau skelfilegu mannréttindabrot sem framin hafa verið í El Fasher. Ísland mun, í gegnum setu sína í mannréttindaráðinu, berjast gegn refsileysi og fyrir ábyrgð þeirra sem fremja alþjóðaglæpi,” segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Borgarastyrjöld hefur geisað í Súdan frá því í apríl 2023 þegar átök brutust út milli hers súdanskra stjórnvalda og uppreisnarsveita RSF. Gríðarlegt mannfall hefur orðið og hungursneyð geisar í fimm héruðum Súdan. Áætlað er að 150.000 manns hafi látist í borgarastríðinu og um 30 milljónir íbúa þurfa á mannúðaraðstoð að halda.
Sérstök rannsóknarnefnd mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um Súdan hefur fjallað um alvarleg og víðtæk mannréttindabrot þar í landi, þ.á.m. kerfisbundið kynferðisofbeldi. Borgin El Fasher í Norður-Darfúr var síðasta vígi stjórnarhersins í vesturhluta landsins þar til sveitir RSF náðu yfirráðum þar 29. október sl. Fregnir hafa borist af fjöldamorðum og öðrum grimmdarverkum.
Á sérstökum fundi mannréttindaráðsins mun ráðið taka afstöðu til ályktunar um alvarlega stöðu mannréttinda í El Fasher og nágrenni í tengslum við innanlandsátökin í Súdan.
Ísland er eitt 47 kjörinna aðildarríkja mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna og á þar sæti í þrjú ár, 2025-2027. Mannréttindaráðið fundar í þremur reglubundnum lotum ár hvert en til að kalla til sérstaks fundar í ráðinu utan reglubundinna fundalotna, líkt og nú hefur verið gert, þarf stuðning þriðjungs ríkjanna 47 sem sitja í ráðinu, eða 16. Síðast var slíkur aukafundur haldinn 7. febrúar sl. um stöðuna í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Aukafundur ráðsins um Súdan verður sá 38. frá því mannréttindaráðið tók til starfa fyrir tæpum 20 árum síðan.
Ísland hefur veitt 410 milljónum króna til mannúðaraðstoðar í Súdan undanfarin þrjú ár.