06 nóvember 2025
/
Mál nr. 558/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 558/2025
Fimmtudaginn 6. nóvember 2025
A
gegn
Reykjavíkurborg
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 4. september 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, dags. 21. maí 2025, um að synja umsókn hans um akstursþjónustu fatlaðs fólks.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 1. mars 2025, sótti kærandi um akstursþjónustu fatlaðs fólks í tvo mánuði. Með bréfi Reykjavíkurborgar, dags. 23. apríl 2025, var umsókn kæranda synjað og var sú ákvörðun staðfest af áfrýjunarnefnd velferðarráðs 21. maí 2025. Kærandi fór fram á rökstuðning fyrir þeirri ákvörðun og var hann veittur með bréfi Reykjavíkurborgar, dags. 9. júlí 2025.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 4. september 2025. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. september 2025, var óskað eftir greinargerð Reykjavíkurborgar ásamt gögnum málsins. Greinargerð barst úrskurðarnefndinni 18. september 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 24. september 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að Reykjavíkurborg hafi hafnað ósk hans um að fá aksturþjónustu fatlaðra í stað akstursþjónustu aldraðra. Kærandi hafi verið greindur með parkinson sjúkdóminn árið 2010 og hafi ekki getað ekið bíl eða notað almenningssamgöngur frá árinu 2015. Kærandi telji að rök Reykjavíkuborgar fyrir því að skilgreina hann ekki fatlaðan séu ekki fullnægjandi og að honum sé neitað um rök sem hann eigi auðvelt með að skilja, byggð á lögum og réttindum fatlaðs fólks. Kærandi fari fram á að úrskurðarnefnd velferðarmála taki mál hans fyrir og leiðrétti þetta misrétti gangvart honum.
III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar
Í greinargerð Reykjavíkurborgar er vísað til þess að kærandi sé X ára gamall maður. Hann sé giftur og búi í eigin húsnæði. Kærandi þiggi örorkulífeyri sér til framfærslu og hafi þegið sutðning við heimilishald frá árinu 2020, með hléum. Árið 2010 hafi kærandi greinst með parkinson og hafi fljótlega orðið ófær um að sinna heimili, aka bíl og sjá um fjármál heimilisins. Árið 2014 hafi kærandi byrjað að styðjast við göngugrind í stuttum ferðum og hjólastól í þeim lengri. Þá hafi hann á sama tíma fengið hjálpartæki inn á heimili sitt, þ.m.t. stoðgreind við bæði salernið og rúmið. Kærandi hafi árið 2021 sótt um akstursþjónustu fatlaðs fólks en hafi verið synjað þar sem fötlun hans hafi ekki fallið að skilgreiningu 2. tölul. 2. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglna um sameiginlega akstursþjónustu við fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu. Í kjölfarið hafi kærandi sótt um akstursþjónustu aldraðra með umsókn, dags. 30. júní 2024, sem hafi verið samþykkt þann 12. júlí 2024. Framangreind samþykkt gildi til 11. júlí 2026. Að mati kæranda hafi hann verið fatlaður fyrir 67 ára aldur og því aftur sótt um akstursþjónustu fatlaðs fólks í tólf mánuði með umsókn, dags. 1. mars 2025, sem hafi verið synjað hjá rafrænni miðstöð Reykjavíkurborgar með bréfi þann 23. apríl 2025. Kærandi hafi skotið framangreindri synjun til áfrýjunarnefndar velferðarráðs sem hafi tekið málið fyrir á fundi sínum þann 21. maí 2025 og afgreitt það með eftirfarandi bókun:
„Áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfesti synjun starfsmanna á Rafrænni miðstöð Reykjavíkurborgar um akstursþjónustu fatlaðs fólks skv. 1. gr. reglna fyrir sameiginlega akstursþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu.“
Kærandi hafi nú skotið ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Fram komi í 29. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga að fatlað fólk skuli eiga kost á akstursþjónustu sem miði að því að það geti farið allra sinna ferða með þeim hætti sem það kjósi, á þeim tíma sem það velji og gegn viðráðanlegu gjaldi. Markmið akstursþjónustu sé að gera þeim sem ekki geti nýtt sér almenningsfarartæki vegna fötlunar kleift að stunda atvinnu og nám og njóta tómstunda. Þá komi fram í 3. mgr. 29. gr. framangreindra laga að ráðherra setji nánari leiðbeiningar. Núgildandi reglur um sameiginlega akstursþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu hafi tekið gildi 1. júlí 2020, verið samþykktar á fundi velferðarráðs Reykjavíkurborgar þann 12. febrúar 2020 og á fundi borgarráðs þann 20. febrúar 2020. Fyrrgreindar reglur séu settar með stoð í 29. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og III. kafla laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Með umsókn, dags. 1. mars 2025, hafi kærandi sótt um akstursþjónustu fatlaðs fólks í 24 mánuði. Með bréfi frá rafrænni miðstöð Reykjavíkurborgar, dags. 23. apríl 2025, hafi framangreindri umsókn verið synjað þar sem fötlun kæranda falli ekki að skilgreiningu 2. tölul. 2. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglna um sameiginlega akstursþjónustu við fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu. Þá hafi kæranda einnig verið synjað á þeim grundvelli að hann ætti rétt á niðurgreiddri akstursþjónustu frá öðrum aðilum eða ætti rétt á akstri samkvæmt öðrum lögum, reglugerðum eða reglum. Eftirfarandi komi fram í 1. mgr. 1. gr. reglna um sameiginlega akstursþjónustu við fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu:
„Akstursþjónusta fatlaðs fólks er ætluð til afnota fyrir þá íbúa Reykjavíkur, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness sem uppfylla það skilyrði að fötlun þeirra falli að skilgreiningu 2. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018, og að þeir eigi ekki rétt á niðurgreiddri akstursþjónustu frá öðrum aðilum eða rétt á akstri samkvæmt öðrum lögum, reglugerðum eða reglum.“
Þá segi meðal annars í 2. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir:
„1. Fötlun: Afleiðing skerðinga og hindrana af ýmsum toga sem verða til í samspili fólks með skerðingar og umhverfis og viðhorfa sem hindra fulla og árangursríka samfélagsþátttöku til jafns við aðra. Skerðingar hlutaðeigandi einstaklings eru langvarandi og hindranirnar til þess fallnar að viðkomandi verði mismunað vegna líkamlegrar, geðrænnar eða vitsmunalegrar skerðingar eða skertrar skynjunar.
2. Fatlað fólk: Fólk með langvarandi líkamlega, geðræna eða vitsmunalega skerðingu eða skerta skynjun sem verður fyrir ýmiss konar hindrunum sem geta komið í veg fyrir fulla og árangursríka samfélagsþátttöku til jafns við aðra ef aðstoðar nýtur ekki við.“
Þá komi meðal annars fram í 3. mgr. 1. gr. reglna fyrir sameiginlega akstursþjónustu við fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu að akstursþjónusta sé ætluð til afnota fyrir þá íbúa Reykjavíkur sem uppfylli það skilyrði að fötlun þeirra falli að skilgreiningu 2. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Þá sé einnig tekið fram að umsækjandi skuli uppfylla annað eða bæði eftirfarandi skilyrða:
„a. Er hreyfihamlaður og þarf að nota hjólastól. Skilyrði er að um sé að ræða varanlega hreyfihömlun eða hreyfihömlun sem hefur varað í þrjá mánuði eða lengur.
b. Er ófær um að nota almenningssamgöngur vegna annarrar langvarandi fötlunar.“
Í læknisvottorði, dags. 31. mars 2025, komi fram að kærandi hafi greinst með parkinson sjúkdóm árið 2010 og sé í eftirliti hjá taugalæknum vegna þessa. Þá komi fram að kærandi fái heimahjúkrun og notist við göngugrind. Þá sé jafnframt tekið fram að hann sé með skerta hreyfigetu og að rík þörf sé fyrir akstursþjónustu fatlaðs fólks. Fagfundur rafrænnar miðstöðvar Reykjavíkurborgar hafi ekki mælt með samþykki á framangreindri umsókn til áfrýjunarnefndar velferðarráðs. Þá hafi fagfundur einnig tekið fram að kærandi væri nú þegar með samþykkta akstursþjónustu aldraðra.
Líkt og fram komi í læknisvottorði, dags. 31. mars 2025, eigi kærandi við sjúkdóm að stríða en ekki fötlun í skilningi 2. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Þá sé einnig ljóst að kærandi uppfylli hvorki skilyrði a. liðar 3. mgr. 1. gr. reglna um sameiginlega akstursþjónustu við fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu um að einstaklingar sem rétt hafi á akstursþjónustu fatlaðs fólks skuli vera hreyfihamlaðir og noti hjólastól né skilyrði b. liðar 3. mgr. 1. gr. framangreindra reglna um að vera ófær um að nýta sér almenningssamgöngur vegna annarrar langvarandi fötlunar. Ljóst sé að kærandi falli ekki að framangreindri skilgreiningu um fötlun né sé hann talin vera með langvarandi hreyfihömlun og þurfi að nota hjólastól eða sé ófær um að nota almenningssamgöngur vegna annarrar langvarandi fötlunar. Þá hafi legið fyrir áfrýjunarnefnd velferðarráðs að kærandi ætti samþykkta umsókn um akstursþjónustu sem gildi til 11. júlí 2026. Áfrýjunarnefnd velferðarráðs hafi því tekið undir mat starfsmanna miðstöðvar Reykjavíkurborgar að samþykkja ekki framangreinda umsókn um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk. Telji kærandi aðstæður vera með þeim hætti, eftir að umsókn hans um akstursþjónustu aldraðra sé fallin úr gildi, að nauðsynlegt sé að sækja um aftur, sé slíkt heimilt.
Með hliðsjón af öllu framangreindu hafi það verið mat áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar að staðfesta bæri synjun rafrænnar miðstöðvar, dags. 23. apríl 2025, varðandi umsókn kæranda um akstursþjónustu fatlaðs fólks þar sem fötlun kæranda falli ekki að skilgreiningu 2. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglna um sameiginlega akstursþjónustu við fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu og þar sem kærandi sé nú þegar með akstursþjónustu aldraðra.
Með hliðsjón af öllu því sem að framan greini sé ljóst að ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar hafi hvorki brotið gegn fyrrgreindum reglum Reykjavíkurborgar fyrir sameiginlega akstursþjónustu við fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu, lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir eða ákvæðum annarra laga eða reglna. Þá beri að nefna að áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjavíkurborgar telji að málsmeðferð í máli kæranda hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja umsókn um akstursþjónustu fatlaðs fólks.
Í 29. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga er kveðið á um akstursþjónustu fatlaðs fólks. Þar segir í 1. mgr.:
„Fatlað fólk skal eiga kost á akstursþjónustu sem miðar að því að það geti farið allra sinna ferða með þeim hætti sem það kýs og á þeim tíma sem það velur gegn viðráðanlegu gjaldi. Markmið akstursþjónustu er að gera þeim sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki vegna fötlunar kleift að stunda atvinnu og nám og njóta tómstunda.“
Samkvæmt 2. gr. laga nr. 38/2018 er fötlun skilgreind sem:
„Afleiðing skerðinga og hindrana af ýmsum toga sem verða til í samspili fólks með skerðingar og umhverfis og viðhorfa sem hindra fulla og árangursríka samfélagsþátttöku til jafns við aðra. Skerðingar hlutaðeigandi einstaklings eru langvarandi og hindranirnar til þess fallnar að viðkomandi verði mismunað vegna líkamlegrar, geðrænnar eða vitsmunalegrar skerðingar eða skertrar skynjunar.“
Þá er í sömu grein að finna skilgreiningu á fötluðu fólki, en þar segir:
„Fólk með langvarandi líkamlega, geðræna eða vitsmunalega skerðingu eða skerta skynjun sem verður fyrir ýmiss konar hindrunum sem geta komið í veg fyrir fulla og árangursríka samfélagsþátttöku til jafns við aðra ef aðstoðar nýtur ekki við.“
Reykjavíkurborg hefur útfært nánar framkvæmd akstursþjónustu fyrir fatlað fólk með reglum nr. 645/2020 fyrir sameiginlega akstursþjónustu við fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt 1. mgr. 1. gr. reglnanna er akstursþjónusta fatlaðs fólks ætluð til afnota fyrir þá íbúa Reykjavíkur, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness sem uppfylla það skilyrði að fötlun þeirra falli að skilgreiningu 2. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og að þeir eigi ekki rétt á niðurgreiddri akstursþjónustu frá öðrum aðilum eða rétt á akstri samkvæmt öðrum lögum, reglugerðum eða reglum. Þá segir í 3. mgr. 1. gr. reglnanna að umsækjandi skuli uppfylla annað eða bæði eftirfarandi skilyrða:
- Er hreyfihamlaður og þarf að nota hjólastól. Skilyrði er að um sé að ræða varanlega hreyfihömlun eða hreyfihömlun sem hefur varað í þrjá mánuði eða lengur.
- Er ófær um að nota almenningssamgöngur vegna annarrar langvarandi fötlunar.“
Af hálfu Reykjavíkurborgar hefur komið fram að það sé ljóst að kærandi hvorki falli að skilgreiningu 2. gr. laga nr. 38/2018 um fötlun né sé hann með langvarandi hreyfihömlun. Þá sé kærandi ekki ófær um að nota almenningssamgöngur vegna annarrar langvarandi fötlunar. Í læknisvottorði, dags. 31. mars 2025, komi fram að kærandi eigi við sjúkdóm að stríða en ekki fötlun í skilningi 2. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Þá sé einnig ljóst að kærandi uppfylli hvorki skilyrði a. liðar 3. mgr. 1. gr. reglna um sameiginlega akstursþjónustu við fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu um að einstaklingar sem rétt hafi á akstursþjónustu fatlaðs fólks skuli vera hreyfihamlaðir og nota hjólastól né skilyrði b. liðar 3. mgr. 1. gr. reglnanna um að vera ófær um að nýta sér almenningssamgöngur vegna annarrar langvarandi fötlunar. Þá hafi einnig legið fyrir að kærandi ætti samþykkta umsókn um akstursþjónustu aldraðra sem gilti til 11. júlí 2026.
Í fyrirliggjandi læknisvottorði kemur fram að kærandi sé með parkinson sjúkdóm og sé í eftirliti hjá taugalæknum. Kærandi noti göngugrind, fái heimahjúkrun og sé með mjög skerta hreyfigetu. Þá kemur fram að kærandi hafi ríka þörf fyrir akstursþjónustu fatlaðra.
Líkt og fram kemur í 29. gr. laga nr. 40/1991 er markmið akstursþjónustu fatlaðs fólks að gera þeim sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki vegna fötlunar kleift að stunda atvinnu og nám og njóta tómstunda. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að kærandi sé fatlaður í skilningi laga nr. 38/2018, en slíkt er skilyrði til að eiga rétt á akstursþjónustu á grundvelli 29. gr. laga nr. 40/1991. Að því virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, dags. 21. maí 2025, um að synja umsókn A, um akstursþjónustu fatlaðs fólks, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir