06 nóvember 2025

/

Nr. 838/2025 Úrskurður

Hinn 6. nóvember 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 838/2025

í stjórnsýslumálum nr. KNU25050100 og KNU25050101

 

Kæra […]

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 29. maí 2025 kærði […], fd. […], ríkisborgari Pakistan (hér eftir kærandi), ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 12. maí 2025, um frávísun frá Íslandi og ógildingu vegabréfsáritunar hans til Íslands, sem gefin var út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 10. apríl 2025.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í 7. gr. laga um útlendinga kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar og lögreglunnar samkvæmt lögunum sé heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var kynnt um ákvörðunina. Samkvæmt framangreindu barst kæra kæranda tveimur dögum eftir að kærufrestur var liðinn. Í ákvörðun lögreglunnar um ógildingu vegabréfsáritunar, dags. 12. maí 2025, er ekki fyrir að finna leiðbeiningar um kærufrest og hvert skuli beina kæru í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 auk þess sem kæranda hafði ekki verið skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga áður en kærufrestur leið. Með vísan til þess verður, eins og á háttar í máli þessu, talið að afsakanlegt sé að kæra hafi ekki borist fyrr, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun sé felld úr gildi.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 27. mars 2025, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir fjögurra daga dvöl frá 11. til 14. maí 2025 sem ferðamaður. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi. Vegabréfsáritun kæranda var gefin út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 10. apríl 2025, með gildistíma frá 11. maí til 24. júní 2025. Kærandi kom til Íslands 11. maí 2025, með flugi frá Lundúnum, Bretlandi. Með ákvörðunum Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 12. maí 2025, var vegabréfsáritun kæranda ógilt og honum vísað frá landinu.

Ákvörðun um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar á að byggjast á stöðluðu eyðublaði sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í ákvörðun lögreglu í máli kæranda er ekki stuðst við framangreint form, heldur eldri útgáfu þess fyrir mistök hjá lögreglu. Var merkt við reit um ógildingu vegabréfsáritunar (e. annulled). Í eyðublaðinu er aukinheldur hægt að merkja við reiti á bilinu 1-11 þar sem fram koma ástæður þess að umsókn er ógilt. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 2 og 8 þess efnis að upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið veittar og að upplýsingar sem hafi verið veittar til að sýna fram á tilgang og skilyrði dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar. Ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar fylgdu viðbótarathugasemdir um að grunur væri um misnotkun á vegabréfsáritun og að ferðaáætlun kæranda samræmdist ekki umsókn hans um vegabréfsáritun. Vegabréfsáritun yrði því ógild.

Samhliða framangreindri ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar tók lögregla ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvörðun um frávísun kemur fram að grunur væri um að vegabréfsáritunar hafi verið aflað í sviksamlegum tilgangi og að ferðaáætlun væri ekki í samræmi við ferðaáætlun í umsókn um vegabréfsáritun.

Fram kemur í skýrslu lögreglu, dags. 12. maí 2025, að kærandi hafi, ásamt ferðafélaga sínum, greint frá því að ætla að vera á Íslandi í einn dag og ætti flug til Glasgow, Skotlandi, daginn eftir. Grunur hafi vaknað hjá lögreglu um misnotkun á áritun og kærandi verið boðinn til viðtals. Kæranda hafi verið leiðbeint um rétt sinn til að leita aðstoðar lögmanns á eigin kostnað og til að hafa samband við fulltrúa heimalands síns og viðurkennd mannúðar- eða mannréttindasamtök. Samkvæmt umsókn kæranda um vegabréfsáritun hafi kærandi sótt um áritun á þeim forsendum að hann hygðist dvelja á Íslandi frá 11. til 14. maí 2025 og ætti bókaða gistingu á tilteknu hóteli fyrir umrædda daga. Við skoðun lögreglu hafi komið í ljós að kærandi ætti bókað flug 12. maí 2025 en ætti jafnframt bókað í flug hinn 14. maí 2025, sem upphafleg ferðaáætlun tilgreindi. Hvað varðar tilgang dvalar kæranda kvaðst hann vera kominn til landsins sem ferðamaður. Kærandi hafi framvísað 5.071 pundum á bankareikningi. Kærandi hafi ekki bókað gistingu en hafi ætlað að skoða gistingu nálægt flugvellinum. Kærandi hafi verið óskýr um svör varðandi breytingu á ferðaáætlun sinni og greint frá því að vera skuldbundin vegna háskólanáms sem hann stundaði og verkefnaskila. Kærandi hafi greint frá því að ætla að skoða menninguna en hafi ekki getað greint frá neinum stöðum hér á landi. Kærandi hafi greint frá því að hafa ákveðið að koma til Íslands eftir meðmæli frá vini sínum. Kærandi hafi greint frá því að hafa ekki verið með ferðaáætlun fyrir sína upphaflegu ferð en hafi ætlað að láta það ráðast. Hann hafi ætlað að ferðast á milli staða með samgöngum eða bíl. Kærandi hafi greint frá því að hafa ekki komið til landsins áður eða þekkja neinn sem hafi ferðast hingað.

Með tilliti til framangreinds hafi lögregla talið að um misnotkun á vegabréfsáritun væri að ræða og hann hafi fengið áritun á fölskum forsendum auk þess sem að framburður kæranda um tilgang dvalar hafi verið óskýr. Af þeim sökum hafi lögregla tekið ákvörðun um að ógilda ákvörðun um vegabréfsáritun til landsins og að frávísa honum á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kærði ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 29. maí 2025. Kærandi lagði fram gögn 5. júní 2025. Gögn frá lögreglu bárust kærunefnd 26. júní 2025. Kæranda var skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga 10. október 2025. Greinargerð kæranda barst 26. október 2025.

III.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er vísað til fyrirliggjandi málsatvika. Kærandi vísar til þess að hann hafi framvísað tilskildum gögnum, s.s. vegabréfi, fjármunum, bókun á gististað og brottfararmiða úr landi. Kærandi hafi skýrt frá tilgangi dvalar sinnar og sýnt fram á umbeðin gögn. Kærandi byggir á því að hin kærða ákvörðun um frávísun hafi verið ólögmæt og ekki staðist áskilnað laga. Samkvæmt hinni kærðu ákvörðun hafi kæranda verið frávísað á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Niðurstöðunni sé andmælt en hann vísar til þess að hann hafi gefið upp tilgang fyrir komu sinni hingað til lands og látið lögreglu í té umbeðin gögn og skýrt frá fyrirhugaðri komu sinni til landsins. Þá telur kærandi að óljóst sé á hverju lögregla byggi ákvörðun sína. Kærandi vísar til þess að hann hafi lagt fram gögn í samræmi við 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri. Þrátt fyrir að ferðaáætlun hans hafi breyst lítillega sé það ekki ástæða frávísunar. Kærandi hafi auk þess gefið lögreglu skýringar á hvers vegna ferðaáætlun hans hafi tekið slíkum breytingum.

Kærandi telur að verulegir annmarkar hafi verið á málsmeðferð lögreglunnar sem eigi að leiða til þess að fella beri hina kærðu ákvörðun úr gildi. Kærandi vísar til 10. gr. stjórnsýslulaga og að hann hafi skýrt frá tilgangi komu sinnar hingað til lands og sýnt fram á fullnægjandi gögn því til stuðnings og þar með uppfyllt skilyrði fyrir inngöngu í landið. Ekki sé tiltekið í hinni kærðu ákvörðun hvaða gögn hafi skort. Þá telur kærandi að ekki hafi verið tekið tillit til andmæla hans. Kærandi vísar til þess að rökstuðningur og skýringar á þeim forsendum sem lagðar séu til grundvallar hinni kærðu ákvörðun sé áfátt og standist ekki áskilnað 22. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi vísar að auki til 7. gr. stjórnsýslulaga og telur að lögregla hafi átt að leiðbeina kæranda um að sýna fram á frekari gögn. Kærandi telur rannsókn málsins ábótavant og ekki í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga. Kæranda hafi jafnframt ekki verið veitt færi á að koma á framfæri andmælum sínum.

Kærandi byggir jafnframt á því að með háttsemi sinni hafi lögregla farið langt umfram það sem góðu meðalhófi gegni, þar sem ekki tíðkist í slíkum málum að krefjast jafnítarlegrar gagnaframlagningar og skýringa fyrir tilgangi dvalar hér á landi af hálfu þeirra sem komi hingað til lands og uppfylli öll skilyrði fyrir komu að öðru leyti. Þá hafi lögreglu borið að rannsaka málið betur áður en gripið hafi verið til slíkrar íþyngjandi ákvörðunar og gefa kæranda kost á að skýra mál sitt betur.

IV.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar

Líkt og að framan greinir fékk kærandi útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar hinn 10. apríl 2025, með gildistíma frá 11. maí til 24. júní 2025. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 12. maí 2025, var vegabréfsáritun kæranda ógilt. Í stöðluðu ákvörðunareyðublaði til að tilkynna um og rökstyðja synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar, sbr. viðauki 6 í reglugerð um vegabréfsáritun, er hægt að merkja í reiti um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 2 og 8 þess efnis að upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið veittar og að upplýsingar sem veittar hafi verið til að sýna fram á tilgang og skilyrði dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar. Ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar fylgdu þær viðbótarathugasemdir að grunur væri um misnotkun á vegabréfsáritun og að ferðaáætlun samræmdist ekki upplýsingum sem kæmu fram í umsókn hans um vegabréfsáritun. Vegabréfsáritun yrði því ógild.

Ákvæði 20. gr. laga um útlendinga og reglugerðar um vegabréfsáritanir fela í sér innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um bandalagsreglur um vegabréfsáritanir en um það vísast einnig til frekari skuldbindinga íslenska ríkisins á sviði Schengen-samstarfsins. Reglugerð um vegabréfsáritanir er sett með stoð í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, en þar kemur fram að ráðherra setji reglur um vegabréfsáritanir, þar á meðal um skilyrði fyrir að veita þær. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga um útlendinga er lögregla meðal valdbærra stjórnvalda til þess að taka ákvarðanir á grundvelli laga um útlendinga og afleiddra réttarheimilda. Embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum fer með eftirlit með einstaklingum um för yfir ytri landamæri og er lögbært yfirvald til að ógilda eða afturkalla vegabréfsáritun samkvæmt 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Að auki tekur lögregla ákvarðanir um landgöngu einstaklinga, sbr. 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga, en í a-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. tekið fram að heimilt sé að frávísa einstaklingum sem ekki fullnægja reglum sem settar eru um vegabréfsáritanir.

Ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar kæranda byggir á 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir en samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins skal ógilda vegabréfsáritun ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar voru ekki uppfyllt þegar hún var gefin út, einkum ef rík ástæða er til að ætla að vegabréfsáritunin sé fengin með sviksamlegum hætti. Vegabréfsáritun skal að jafnaði ógilt af lögbærum yfirvöldum aðildarríkisins sem gaf hana út. Lögbærum yfirvöldum annars aðildarríkis er heimilt að ógilda vegabréfsáritun og skal þá yfirvöldum aðildarríkisins, sem gaf út vegabréfsáritunina, tilkynnt um ógildingu hennar. Líkt og að framan greinir lagði lögregla til grundvallar að upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar.

Meðal fylgigagna málsins er umsókn kæranda um vegabréfsáritun, dags. 27. mars 2025, þar sem fram kemur að kærandi hafi ætlað að dvelja á Íslandi í fjóra daga á tímabilinu 11. til 14. maí 2025. Því til stuðnings hafi kærandi lagt fram fylgigögn á borð við bókanir fyrir flugi og gistingu. Á grundvelli forsendna sem kærandi bar fyrir sig hafi hann fengið útgefna vegabréfsáritun. Við komu til Íslands hafi þær forsendur þó ekki staðist. Hjá lögreglu bar kærandi fyrir sig að ferð hans hafi breyst vegna þess að hann væri í námi í Bretlandi og hann þyrfti að skila verkefni. Kærandi greindi frá því að ætla að dvelja í einn dag hér á landi og ætti flug til Bretlands 12. maí 2025. Þá gat kærandi ekki greint frá ferðaáætlun sinni hér á landi eða hvar hann hygðist dvelja eða gera. Samkvæmt framansögðu var framburður kæranda misvísandi sem gefur til kynna að framlagning gagna hjá utanríkisþjónustunni hafi verið á röngum forsendum. Samkvæmt framangreindu hafi upplýsingar um tilgang og skilyrði ferðar kæranda ekki verið áreiðanlegar auk þess sem rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, sbr. til hliðsjónar ii-lið a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Af framangreindu leiðir að útgáfa áritunar til handa kæranda hafi byggst á röngum forsendum og voru skilyrði fyrir útgáfu hennar því ekki uppfyllt þegar hún var gefin út. Var lögreglu því heimilt að ógilda vegabréfsáritun kæranda 12. maí 2025 og er sú ákvörðun staðfest.

Ákvörðun um frávísun

Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu óheimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Kærandi er ríkisborgari Pakistan og fékk útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 10. apríl 2025.

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 12. maí 2025, byggir á a- og c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.

Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt a-lið 1. mgr. ákvæðisins er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann fullnægir ekki reglum sem settar eru um vegabréf, vegabréfsáritun, ferðaheimild eða komu til landsins. Líkt og þegar hefur verið rakið tók Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að ógilda vegabréfsáritun kæranda og hefur sú ákvörðun verið staðfest af kærunefnd. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.

Samkvæmt c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að frávísa útlendingi við komu til landsins þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri (Schengen landamærareglurnar). Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017.

Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins. Eru skilyrðin eftirfarandi: Að framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Má ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Má ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.

Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.

Í ákvörðun lögreglu um frávísun kemur fram að grunur væri um misnotkun á vegabréfsáritun og að ferðaáætlun kæranda samræmdist ekki upplýsingum í umsókn um vegabréfsáritun. Í skýrslu lögreglu kemur fram að kærandi hafi greint frá því að ætla að dvelja á landinu í einn dag og ætti flugmiða til Bretlands degi síðar. Kærandi hafi ekki haft bókaða gistingu og hafi ekki getað greint frá fyrirætlunum sínum hér á landi en hafi ætlað að skoða sig um nálægt flugvellinum. Samkvæmt umsókn kæranda um vegabréfsáritun hafi kærandi ætlað að koma hingað til lands sem ferðamaður og hugðist dvelja í fjóra daga á tímabilinu 11. til 14. maí 2025. Kærandi hafi lagt fram bókun á flugmiða og gistingu samhliða umsókn sinni. Hjá lögreglu hafi kærandi borið fyrir sig að ferðaáætlun hans hafi breyst vegna verkefnaskila í námi hans í Bretlandi. Með vísan til framangreinds misræmis á fyrirhugaðri ferð kæranda hingað til lands 11. til 14. maí 2025 samkvæmt umsókn um vegabréfsáritun og ferðar hans til landsins 11. maí 2025 þar sem kærandi hugðist dvelja á landinu í einn sólarhring hefur kærandi ekki fært rök fyrir tilgangi fyrirhugaðrar dvalar hér á landi. Kærandi hefur því ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem hann gaf upp fyrir dvölinni. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.

Í málatilbúnaði kæranda eru gerðar athugasemdir við meðferð málsins, m.a. varðandi 10., 12. og 13. gr. stjórnsýslulaga. Með vísan til framangreinds er ljóst að kærandi fékk tækifæri til að gera grein fyrir ferðalagi sínu hjá lögreglu þar sem hann var jafnframt inntur eftir upplýsingum og gögnum um ferðatilhögun sína. Að virtum gögnum málsins er ekki ástæða til þess að gera athugasemdir við framangreind atriði í málsmeðferð lögreglu.

Að öllu framangreindu virtu er hin kærða ákvörðun um frávísun kæranda staðfest.

Athugasemdir kæranda við meðferð lögreglu

Kærandi telur að lögreglan hafi farið umfram meðalhóf, sbr. 12. gr. stjórnsýslulaga. Kæranda er bent á að hann geti borið umkvartanir um vinnubrögð lögreglu undir nefnd um eftirlit með lögreglu eða héraðssaksóknara, sbr. VII. kafla lögreglulaga nr. 90/1996, telji hann ástæðu til.

Athugasemdir kærunefndar við störf lögreglu

Gerð er athugasemd við framangreinda ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar í máli kæranda. Virðist sem að lögregla hafi ekki notast við nýjustu útgáfu af hinu staðlaða eyðublaði sem Schengen-ríkin nota við ógildingu á vegabréfsáritun og verður það ekki talið í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti. Umsækjanda skal tilkynnt um ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar og ástæður hennar á stöðluðu eyðublaði sem fram kemur í viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir.

Hinar kærðu ákvarðanir um frávísun og ógildingu vegabréfsáritunar fjalla um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í hinum kærðu ákvörðunum er ekki að finna frekari rökstuðning fyrir töku þeirra annan en að hakað er við á hvaða synjunar- og afturköllunarástæðu er byggt í stöðluðum ákvarðanaeyðublöðum. Að öðru leyti kom ekki fram hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirra niðurstaðna eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við töku ákvarðananna að undanskildum þeim athugasemdum um að kærandi hafi ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar og að vegabréfsáritunar hafi verið aflað með sviksamlegum hætti. Verður því að líta svo á að með hinum kærðu ákvörðunum hafi ekki fylgt rökstuðningur í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Bar því að leiðbeina kæranda um þá heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga að fá slíkan rökstuðning eftir á. Í hinum kærðu ákvörðunum var ekki fyrir að finna slíkar leiðbeiningar. Þá eru leiðbeiningar í ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar áfátt en þar koma ekki fram fullnægjandi upplýsingar um kæruheimild, þ.e. um kærufrest og til hvaða stjórnvalds skuli beina kæru. Að þessu leyti voru hinar kærðu ákvarðanir ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Framangreindir annmarkar hafa þó ekki áhrif á niðurstöðu málsins. Því er beint til lögreglunnar að gæta að framangreindu í sambærilegum málum.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum eru staðfestar.

The decisions of the Police Commissioner of Suðurnes District are affirmed.

 

Þorsteinn Gunnarsson                               Valgerður María Sigurðardóttir