07 nóvember 2025

/

1311/2025. Úrskurður frá 7. nóvember 2025

Hinn 7. nóvember 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1311/2025 í máli ÚNU 25030008.
 

Kæra, málsatvik og málsmeðferð

Með erindi, dags. 7. mars 2025, kærði […] til úrskurðarnefndar um upplýsingamál ákvörðun Vestmannaeyjabæjar að hafna beiðni hans, dags. 20. febrúar 2025, um aðgang að ráðn­ingarsamningum byggingarfulltrúa sveitarfélagsins annars vegar og hafnsögumanns hins vegar. Beiðninni var synjað með erindi, dags. 4. mars 2025, þar sem fram kom að Vestmannaeyjabæ bæri ekki að veita slíkar upplýsingar.
 
Kæran var kynnt Vestmannaeyjabæ með erindi, dags. 12. mars 2025, og sveitarfélaginu gefinn kostur á að koma á fram­færi umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að Vestmannaeyjabær afhenti úrskurðarnefnd um upp­lýs­inga­mál þau gögn sem kær­an varðar.
 
Umsögn Vestmannaeyjabæjar barst úrskurðarnefndinni 26. mars 2025. Umsögninni fylgdu þau gögn sem kæran varðar. Í umsögn­inni kemur fram að Vestmannaeyjabæ sé samkvæmt 2.–3. tölul. 2. mgr. 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, skylt að veita upplýsingar um starfssvið og föst launa­kjör starfsmanna. Ekki sé kveðið á um að afhenda þurfi ráðningarsamninga til þess að veita upp­lýsingarnar. Í ráðningarsamningi komi fram upplýsingar um stéttarfélag, lífeyrissjóð, heimilisfang, símanúmer o.fl.
 
Umsögn Vestmannaeyjabæjar var kynnt kæranda með erindi, dags. 26. mars 2025, og honum gef­inn kostur á að koma á fram­færi frekari at­huga­semd­um. Ekki bárust athugasemdir frá kær­anda.
 

Niðurstaða

Í máli þessu er deilt um rétt kæranda til aðgangs að ráðningarsamningum starfsmanna Vest­manna­eyja­bæjar í vörslu sveitarfélagsins. Í hinni kærðu ákvörðun kom fram að sveit­arfélaginu bæri ekki að veita slíkar upplýsingar en í umsögn til nefndarinnar var bætt við að óskylt væri að afhenda ráðn­ingarsamninga til að veita upplýsingar um föst launakjör starfsmanna og starfssvið þeirra.
 
Í 4. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, er mælt fyrir um að réttur almennings til aðgangs að gögnum taki ekki til gagna sem tengjast málefnum starfsmanna. Ákvæðið er útfært í 7. gr. laganna, þar sem segir í 1. málsl. 1. mgr. lagagreinarinnar að réttur almennings til aðgangs að gögnum um mál­efni starfsmanna sem starfa hjá aðilum sem lögin taka til samkvæmt 2. gr. taki ekki til gagna í mál­um sem varða umsóknir um starf, framgang í starfi eða starfssambandið að öðru leyti.
 
Í athugasemdum við 7. gr. með frumvarpi því sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, kemur fram að með gögnum í málum sem varða starfssambandið sé átt við gögn í málum þar sem teknar eru ákvarðanir um réttindi og skyldur starfsmanna, t.d. mál þar starfsmaður hefur þurft að sæta frá­drætti frá launum, ákvarðanir stjórnenda um sveigjanlegan vinnutíma og um aukastörf, og enn frem­ur mál er lúta að aðfinnslum og áminningu eða eftir atvikum starfslokum.
 
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál telur að gögn í málum einstakra starfsmanna sem varða ráðn­ingu þeirra í starf teljist einnig varða starfssambandið í skilningi 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. upp­lýs­ingalaga. Ráðningarsamningur viðkomandi starfsmanns er gagn í slíku máli og verður því að telja að aðila sem heyrir undir gildissvið upplýsingalaga sé almennt heimilt að takmarka aðgang að slík­um samn­ingi.
 
Úrskurðarnefndin hefur farið yfir þau gögn sem Vestmannaeyjabær afmarkaði beiðni kæranda við. Um er að ræða tvö skjöl. Annars vegar ráðningarsamning byggingarfulltrúa bæjarins ásamt fylgi­skjali og hins veg­ar ráðningarsamning hafnsögumanns bæjarins. Nefndin telur að Vestmanna­eyjabæ hafi verið heimilt að hafna beiðni kæranda um aðgang að gögnunum. Verður ákvörðun Vest­mannaeyjabæjar því staðfest. Úrskurðarnefndin bendir á að kæranda er unnt að biðja Vest­manna­eyjabæ sérstak­lega um þær upplýsingar um starfsmennina sem tilgreindar eru í 2. og 3. tölul. 2. mgr. 7. gr. upp­lýs­inga­laga.
 

Úrskurðarorð

Staðfest er ákvörðun Vestmannaeyjabæjar, dags. 4. mars 2025, að synja beiðni kær­anda um aðgang að ráðningarsamningum byggingarfulltrúa og hafnsögumanns bæjarins.
 
 
 
 
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir