07 nóvember 2025

/

Heilsugæsla Uppsveita tekin til starfa á Flúðum

{image.Description}
Mynd: HSU

Fjölmenni var við opnunarhátíð nýrrar heilsugæslustöðvar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Flúðum í Hrunamannahreppi í vikunni. Nýja stöðin sem leysir af hólmi gömlu heilsugæslustöðina í Laugarási, er við Hrunamannaveg 3, í vel búnu, sérhönnuðu húsnæði sem hentar fyrir starfsemina. Heilsugæslustöðin þjónustar íbúa Bláskógarbyggðar, Grímsness- og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Íbúar á svæðinu eru um 3.500.

Til að fagna nýrri starfsstöð var haldið opið hús þar sem gestum var boðið að skoða húsnæðið, ræða við starfsfólk og þiggja veitingar.Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, segir bjart framundan varðandi rekstur nýju heilsugæslustöðvarinnar. Hún sé vel mönnuð reynslumiklu og öflugu fagfólki, þar á meðal þremur læknum í föstum stöðum. Þá verði fljótlega á nýju ári opnað apótek við hlið heilsugæslustöðvarinnar sem tryggi heildstæðari og þægilegri þjónustu fyrir íbúa svæðisins.