10 nóvember 2025
/
Fyrsta ungmennastefna Íslands væntanleg
Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingmaður og þingflokksformaður Samfylkingarinnar, mun leiða stýrihóp mennta- og barnamálaráðuneytisins um mótun fyrstu ungmennastefnu Íslands. Markmið hennar er að sameina ólík stefnumál sem snerta ungt fólk og tryggja aukna þátttöku ungs fólks í stefnumótun.
Á undanförnum árum hefur komið skýrt fram í gögnum, rannsóknum og ábendingum ungs fólks að skortur sé á heildstæðri sýn og stefnu í málefnum ungs fólks. Að auki hefur Ísland undirritað fjölmörg alþjóðleg samkomulög um réttindi barna og ungs fólks sem leggja áherslu á þátttöku og aðgengi að tækifærum.
„Ungmennastefna mun stuðla að jöfnum tækifærum óháð uppruna, kyni, fötlun eða búsetu. Samfélög sem fjárfesta í ungu fólki byggja aukna farsæld, aukið traust og sterkari samfélagslega samheldni,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra.
Guðmundur Ari Sigurjónsson hefur víðtæka reynslu af starfi með ungu fólki og hefur meðal annars setið í Æskulýðsráði ríkisins, starfað á vettvangi félagsmiðstöðva ásamt víðtækri reynslu úr stjórnsýslu. Guðmundur Ari hefur meðal annars setið í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar, stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga og er í dag formaður þekkingar- og menningarnefndar Norðurlandaráðs.
Stefnan er liður í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Þá tengist stefnan áherslum menntastefnu 2030. Hún verður unnin í víðtæku samráði við ungmenni og aðra hagaðila og hefst sú vinna á næstu vikum.