10 nóvember 2025

/

Nr. 843/2025 Úrskurður

Hinn 10. nóvember 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 843/2025

í stjórnsýslumál nr. KNU25070185

 

Endurtekin umsókn […]

1               Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 1097/2024, dags. 31. október 2024, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. mars 2024, um að taka umsókn karlmanns er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og brottvísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 31. október 2024.

Kærandi óskaði eftir aðstoð við sjálfviljuga heimför og yfirgaf landið með aðstoð Útlendingastofnunar 6. desember 2024 og fór til Grikklands, þar sem hann hefur löglega heimild til dvalar. Kærandi kom aftur hingað til lands 10. mars 2025 og lagði fram endurtekna umsókn 11. mars 2025. Hann kom til viðtals hjá lögreglu vegna umsóknarinnar sama dag. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. júlí 2025, var endurtekinni umsókn kæranda vísað frá og honum ákvörðuð brottvísun og endurkomubann í tvö ár yfirgæfi hann ekki landið innan veitts frests. Hinn 15. júlí 2025 barst kærunefnd kæra vegna ákvörðunar Útlendingastofnunar um að vísa frá endurtekinni umsókn kæranda. Endurtekin umsókn kæranda byggir á 35. gr. a laga um útlendinga. Kærandi lagði samhliða fram greinargerð hjá kærunefnd. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, 22. ágúst 2025, var framangreind ákvörðun um að vísa frá endurtekinni umsókn kæranda afturkölluð með vísan til þess að ekki hafi verið tekin afstaða til 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 í máli kæranda og ákveðið að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

2               Málsástæður og rök kærenda

Í ljósi niðurstöðu kærunefndar verður greinargerð kæranda ekki rakin.

3               Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Líkt og að framan er rakið var endurtekinni umsókn kæranda á grundvelli 35. gr. laga um útlendinga vísað frá með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. júlí 2025. Í ákvörðuninni var hvorki fjallað um 42. gr. laga um útlendinga né tekin afstaða til ákvæðisins. Var ákvörðunin haldin annmarka að því leyti, sem kom í ljós eftir töku ákvörðunar. Ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. júlí 2025, var afturkölluð hinn 22. ágúst 2025. Afturköllunin var byggð á 1. tölul. 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, enda væri ákvörðunin íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun og teldist afturköllun hennar ekki til tjóns fyrir kæranda. Fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar um afturköllun að láðst hafi að taka afstöðu til 42. gr. laga um útlendinga og að fyrir lægi að bæta þyrfti úr þeim annmarka.

Játa verður lægra settu stjórnvaldi ákveðið svigrúm til að afturkalla ákvörðun sína, einkum þegar um íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun er að ræða, sérstaklega ef í ljós kemur að ákvörðun er haldin annmarka. Það svigrúm takmarkast að einhverju leyti eftir að ákvörðun hefur verið kærð til æðra setts stjórnvalds. Að jafnaði er stjórnvaldi heimilt að afturkalla ákvörðun sem borin hefur verið undir æðra sett stjórnvald ef ljóst er að afturköllunin er til hagsbóta fyrir málsaðila og hann setur sig ekki upp á móti því. Líkt og að framan greinir var ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. júlí 2025, haldin annmarka sem uppgötvaðist eftir töku ákvörðunarinnar. Var ákvörðun Útlendingastofnunar afturkölluð eftir að kæra var fram komin. Það að ákvörðun Útlendingastofnunar var íþyngjandi leiðir ekki sjálfkrafa til þess að afturköllun sé ekki til tjóns fyrir aðila. Leggja þarf heildarmat á aðstæður og líta til þess að ákvörðunin hafði þegar verið kærð til kærunefndar sér í lagi þar sem afturköllun Útlendingastofnunar laut að efnisbreytingu á ákvörðun stofnunarinnar. Fyrir liggur að kærandi hafði ekki veitt samþykki sitt fyrir afturköllun á ákvörðun Útlendingastofnunar. Ákvörðun um afturköllun telst ný stjórnvaldsákvörðun, en í ákvörðun Útlendingastofnunar um afturköllun láðist að leiðbeina um kærurétt. Var kæranda þar með ekki veitt færi á að bera afturköllunina undir kærunefnd. Við meðferð málsins hjá kærunefnd kom fram sú afstaða kæranda að hann hygðist ekki draga kæru á ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. júlí 2025, til baka og að hann óskaði þess að ákvörðunin yrði endurskoðuð af kærunefnd. Með vísan til þeirra upplýsinga sem bárust kærunefnd frá Útlendingastofnun, dags. 28. október 2025, um að ný ákvörðun um að vísa frá endurtekinni umsókn kæranda hafi verið tekin í máli hans, sama dag, og verið birt fyrir kæranda með leiðbeiningum um kærurétt, verður ekki talið að afturköllunin hafi verið til hagsbóta fyrir kæranda.

Með vísan til þess sem að framan hefur verið rakið, og eins og atvikum háttar í máli þessu, var Útlendingastofnun óheimilt að afturkalla ákvörðun sína eftir að hún hafði verið kærð til kærunefndar.

Með vísan til framangreinds eru ákvarðanir Útlendingastofnunar um að vísa frá endurtekinni umsókn kæranda og um að afturkalla þá ákvörðun síðar, sbr. 25. gr. stjórnsýslulaga, felldar úr gildi. Í ljósi þess að Útlendingastofnun hefur þegar tekið nýja ákvörðun í máli kæranda, sem er kæranleg til kærunefndar, leiðir framangreind niðurstaða ekki til þess að málið hljóti nýja meðferð hjá stofnuninni.


 

Úrskurðarorð:

 

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi.

 

The decisions of the Directorate of Immigration are vacated.

 

 

 

F.h. kærunefndar útlendingamála,

 

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður.