10 nóvember 2025
/
Ráðherra tók þátt í Heimsþingi kvenleiðtoga
Einarður stuðningur Íslands við Úkraínu, mikilvægi áframhaldandi þvingunaraðgerða og árásir Rússlands á borgaralega innviði Úkraínu voru á meðal helstu umræðuefna á fundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Mariana Betsa, aðstoðarutanríkisráðherra Úkraínu í utanríkisráðuneytinu í gær. Fundurinn fór fram í tengslum við Heimþing kvenleiðtoga sem hófst í gær í Hörpu og lýkur í dag.
Á fundinum áréttaði Betsa þakkir til íslenskra stjórnvalda fyrir framlag Íslands til varna Úkraínu, meðal annars með þátttöku í samstarfi um sprengjuleit og eyðingu, kaupum á varnarbúnaði og stuðning við úkraínskan hergagnaiðnað í gegnum frumkvæði Dana.
Utanríkisráðherra tók sömuleiðis þátt í opnunarviðburði Heimsþingsins í Hörpu og flutti síðdegis opnunarávarp á alþjóðlegu málþingi í Háskóla Íslands í tilefni af aldarfjórðungsafmæli ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 1325 um konur, frið og öryggi.