10 nóvember 2025

/

Samstarfsvettvangur um mannvirkjarannsóknir og -prófanir stofnaður í dag

{image.Description}
Hari

Samstarfsvettvangur um mannvirkjarannsóknir og prófanir verður formlega stofnaður á viðburði sem haldinn verður hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, í hádeginu í dag, mánudaginn 10. nóvember kl. 12:00-13:00.

Hægt er að fylgjast með viðburðinum í streymi:



Hlutverk samstarfsvettvangsins er að efla slagkraft, sýnileika og samhæfingu rannsókna og prófana í  húsnæðis- og mannvirkjagerð á Íslandi. Að samstarfinu koma stjórnvöld, menntastofnanir og atvinnulíf.

Meðal þeirra sem koma fram á viðburðinum eru:
  • Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra
  • Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
  • Hermann Jónasson, forstjóri HMS
  • Sigríður Ósk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri umhverfis- og gæðasviðs Hornsteins og fulltrúi í vísindaráði
  • Elín Þórólfsdóttir, teymisstjóri starfsumhverfis mannvirkjagerðar

Í pallborði verða:

  • Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs hjá Samtökum iðnaðarins
  • Ólafur Sveinn Haraldsson, forstöðumaður rannsókna hjá Vegagerðinni og aðjúnkt Háskóla Íslands
  • Ólafur Haralds Wallevik – PhD, prófessor í byggingarverkfræði í Háskólanum í Reykjavík
  • Þórunn Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri mannvirki og sjálfbærni hjá HMS

Einnig er hægt að mæta í salinn og er fólk þá beðið um að skrá sig. Viðburðurinn fer fram hjá HMS í Borgartúni 21.