11 nóvember 2025

/

Dómsmálaráðherra fundaði með framkvæmdastjóra Europol

{image.Description}
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Catherine De Bolle framkvæmdastjóri Europol

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra fundaði í dag með Catherine De Bolle, framkvæmdastjóra Europol. Á fundinum ræddu þær meðal annars um mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi og aukna þátttöku Íslands í samstarfi aðildarríkja Schengen á sviði sakamálasamvinnu.

Ráðherra ræddi um stefnu íslenskra stjórnvalda í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi og nýjar áskoranir vegna netglæpa.

„Skipulögð brotastarfsemi þekkir engin landamæri – og því verður baráttan gegn henni að byggja á öflugri alþjóðlegri samvinnu. Skipulagðir glæpahópar herja meðal annars á börnin okkar á netinu. Þetta eru ógeðfelld brot sem er ómögulegt að eiga við án samstarfs við löggæslulið annarra þjóða,“ segir ráðherra.

Þá lagði hún áherslu á að auka samvinnu við Europol, bæði á vettvangi Schengen og í gegnum samstarf lögreglu og annarra löggæsluyfirvalda, með það að markmiði að bæta upplýsingaflæði, greiningarvinnu og viðbragð við alþjóðlegri glæpastarfsemi.

„Samskipti og samstarf við Europol eru mikilvæg til að tryggja öryggi og stöðugleika í Evrópu. Ísland vill leggja sitt af mörkum með virkum hætti í þessu alþjóðasamstarfi.“

Á fundi þeirra kynnti De Bolle jafnframt nýjustu áherslur Europol í samevrópskri löggæslusamvinnu, en ráðherra greindi frá því að Ísland hefði nýlega hafið sjálfvirka gagnaupphleðslu í upplýsingakerfi Europol (EIS), þar sem nú þegar hafa verið flutt 230 mál inn í kerfið.