13 nóvember 2025

/

Drög að nýjum heildarlögum um barnavernd til umsagnar

{image.Description}

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda drög að nýjum heildarlögum um barnavernd. Frumvarpsdrögin eru byggð á stefnumótunarvinnu stjórnvalda sem fram hefur farið síðustu ár sem og víðtæku samráði við fagfólk í málaflokknum og börn.

Frumvarpinu er meðal annars ætlað að innleiða samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda sem mennta- og barnamálaráðherra, ásamt fjármála- og efnahagsráðherra og Sambandi íslenskra sveitarfélaga, undirritaði hinn 19. mars 2025. Það er svar við ákalli sveitarfélaga sem hafa um árabil kallað eftir því að ríkið taki aukna ábyrgð á uppbyggingu búsetuúrræða og þjónustu við þau börn sem þurfa sérhæfðustu þjónustuna.

Þá er með frumvarpinu lagt til að nýtt barnaverndarráð á vegum ríkisins taki til starfa. Ráðið komi í stað umdæmisráða barnaverndar og sérfræðingateymis vegna barna með fjölþættan vanda. Ráðinu verði falið ákvörðunarvald um nánar tilgreindar ráðstafanir á grundvelli laganna, sem og að leggja mat á það hvort það sé barni fyrir bestu að vera vistað utan heimilis vegna fjölþættra stuðningsþarfa.

Með frumvarpinu eru jafnframt lagðar til fjölmargar aðrar breytingar frá ákvæðum gildandi barnaverndarlaga, nr. 80/2002. Aukin áhersla er á sjálfstæð réttindi barna, barnvæna nálgun og þverfaglegt samstarf þeirra aðila sem sinna þjónustu í þágu barna. Réttindi barna við málsmeðferð barnaverndar eru styrkt, þar á meðal með aukinni áherslu á að börn fái skipaðan talsmann. Þá er jafnframt lagt til það nýmæli að mælt verði fyrir um réttindi barna til heilbrigðisþjónustu og menntunar í vistun á vegum barnaverndar í löggjöfinni.

Í frumvarpsdrögunum er lagt til að fjallað verði með ítarlegri hætti en í gildandi lögum um beitingu þvingunar gagnvart börnum sem vistuð eru utan heimilis í úrræðum á ábyrgð barnaverndaryfirvalda. Um er að ræða ýmis nýmæli sem er ætlað að auka fyrirsjáanleika og meðal annars bregðast við ábendingum umboðsmanns Alþingis um skort á skýrri lagaumgjörð um beitingu þvingana innan barnaverndarkerfisins.

Þá er með frumvarpinu lagðar til fjölmargar aðrar breytingar sem er m.a. ætlað að skýra gildissvið laga um barnavernd gagnvart börnum sem eru hér á landi án forsjáraðila o.fl.

„Ég er stoltur af þessum stóra áfanga og þeim tímabæru breytingum sem kynntar eru með frumvarpsdrögunum. Ég hef trú á því að ný lög feli í sér mikla réttarbót fyrir öll börn sem þurfa stuðning og þjónustu á vegum barnaverndarkerfisins. Þá séu þau jafnframt til þess fallin að styðja betur við þau mikilvægu störf sem starfsfólk barnaverndar sinnir á degi hverjum,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra.

Mennta- og barnamálaráðuneytið hvetur haghafa og aðra áhugasama um málefni barna að veita umsögn. Umsagnarfrestur er til og með 27. nóvember.