13 nóvember 2025

/

Karl Guðmundsson ráðinn verkefnastjóri stórfjárfestinga

{image.Description}

Karl Guðmundsson hefur verið ráðinn í starf verkefnastjóra stórfjárfestinga á sviði atvinnuþróunar með aðsetur í forsætisráðuneytinu. Starfið tengist vinnu stjórnvalda við mótun nýrrar atvinnustefnu fyrir Ísland og er tímabundið til loka árs 2027.

Starf verkefnastjóra stórfjárfestinga felst í því að leiða þátttöku stjórnvalda í átaki með atvinnulífinu sem snýr að því að ýta undir vöxt útflutningsgreina með háa framleiðni, samræma og móta aðkomu stjórnvalda að fjárfestingarverkefnum í atvinnulífinu og samskiptum við hagaðila.

Karl hefur víðtæka reynslu og hefur tekið þátt í stofnun og uppbyggingu fjögurra nýsköpunarfyrirtækja á Íslandi og í Bandaríkjunum. Hann hefur m.a. starfað sem framkvæmdastjóri Florealis ehf., forstöðumaður útflutnings og fjárfestinga hjá Íslandsstofu og sinnt vöruþróun og markaðsmálum hjá Ekso Bionics, Zimmer Biomet og Össuri.

Karl er með MBA-gráðu frá University of California í San Diego og hefur auk þess lokið B.Sc.-gráðu í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands. Karl hefur þegar hafið störf í forsætisráðuneytinu.