13 nóvember 2025

/

Vitundarvakning um viðeigandi notkun myndgreiningar

{image.Description}
Herferð evrópskra geislavarnastofnana: Rétt myndgreining fyrir sjúklinginn minn"

Samtök evrópskra geislavarnastofnana (HERCA) hafa sett af stað samskiptaherferð til að vekja athygli á og ýta undir notkun viðeigandi myndgreiningar. Geislavarnir ríkisins aðilar að samtökunum og stýra verkefninu hér á landi. Yfirskrift herferðarinnar er „Rétt myndgreining fyrir sjúklinginn minn“ og er markmiðið að vekja lækna sem senda sjúklinga í myndgreiningarrannsóknir til umhugsunar um hvað best sé fyrir sjúklinginn í hvert sinn og auka vitund um viðeigandi læknisfræðilega notkun jónandi geislunar til myndgreiningar.

„Ég fagna þessu mikilvæga samevrópska verkefni. Það fellur vel að áherslum og markmiðum stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og stefnu í heilbrigðismálum um að efla gæði og skilvirkni heilbrigðisþjónustu og tryggja að fólk fái rétta meðferð á réttum stað og tíma með áherslu á öryggi sjúklinga og ábyrga nýtingu fjármuna“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

Í tilkynningu Geislavarna ríkisins er bent á að viðeigandi notkun myndgreiningar bætir heilbrigðisþjónustu fyrir alla, bætir aðgengi og minnkar kostnað. Þá kemur fram að niðurstöður úr nýlegu evrópsku verkefni, EU-JUST-CT, bendi til þess að í sumum löndum Evrópu séu allt að 40% tölvusneiðmyndarannsókna ekki réttlætanlegar. Það sé því til mikils að vinna, ekki síst fyrir sjúklinga.

Geislavarnastofnanir hvers þátttökulands sjá um herferðina í sínu landi. 21 land í Evrópu tekur þátt. Geislavarnir ríkisins hafa þýtt bæklinga herferðarinnar yfir á íslensku en þeir eru einnig aðgengilegir á fleiri tungumálum á vefsíðu herferðarinnar.

Nánar má lesa um herferðina á Íslandi og nálgast bæklingana á vef Geislavarna ríkisins, sjá tengil hér að neðan.