14 nóvember 2025
/
Drög að atvinnustefnu birt í samráðsgátt stjórnvalda
Forsætisráðuneytið hefur birt til umsagnar drög að atvinnustefnu í samráðsgátt stjórnvalda, ásamt stöðugreiningu um þróun efnahags- og atvinnulífs 2010-2024 þar sem dregin eru fram lykilviðfangsefni og áskoranir.
Atvinnustefnan er vaxtarplan til 2035 og er ætlað að styðja við framtíðarsýn stjórnvalda um verðmætasköpun sem er knúin af fjölbreyttum útflutningi sem byggir á nýsköpun og sjálfbærri nýtingu auðlinda. Meginmarkmið stefnunnar er kröftugur vöxtur útflutnings sem byggir á atvinnugreinum með háa framleiðni.
Stjórnvöld vilja styðja við atvinnulíf þar sem framleiðni er há, alþjóðleg samkeppnishæfni er mikil og stuðla að því að fjölbreytt störf finnist um allt land. Þá er mikilvægt að atvinnustefnan styðji við samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda í útflutningsgreinum.
Almenningur og hagaðilar eru hvött til að kynna sér efnið og veita endurgjöf með því að senda inn umsagnir. Einnig er kallað eftir svörum við spurningum um afmörkuð viðfangsefni og mögulegar aðgerðir sem síðar verða settar fram í aðgerðaáætlun til að vinna að framkvæmd atvinnustefnunnar.
Samráð stendur yfir í þrjár vikur, þ.e. til 5. desember næstkomandi. Niðurstöður verða nýttar við áframhaldandi vinnu. Stefnt er að því að gefa út endanlega atvinnustefnu ásamt aðgerðaáætlun á fyrsta ársfjórðungi 2026.