14 nóvember 2025

/

Geðheilsuteymi fangelsa fært til Landspítala

{image.Description}
Ljósm. Karl Petersson
Hólmsheiði

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að geðheilsuteymi fangelsa verði fært frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) til Landspítala (LSH). Ákvörðunin byggir á sameiginlegri greiningu stjórnenda og fagfólks HH og LSH sem telja rík fagleg rök mæla með tilfærslunni. Þar vegi þungt samlegðaráhrif  við þjónustu Réttar- og öryggisgeðdeildar spítalans og einfaldari þjónustuferlar fyrir fanga. Þessi breyting fellur að markmiðum um að efla aðgengi og gæði heilbrigðisþjónustu við viðkvæma hópa og tryggja samfellda, samþætta og faglega þjónustu innan heilbrigðiskerfisins. Undirbúningur að yfirfærslunni hefst strax og er gert ráð fyrir að geðheilsuteymi fangelsa verði að fullu tekið til starfa á Landspítala 1. maí á næsta ári.

Sérhæfðu geðheilsuteymi fyrir fanga var komið á fót innan HH árið 2020, ætlað til að efla geðþjónustu innan fangelsa. Með stofnun teymisins var jafnframt brugðist við athugasemdum nefndar Evrópuráðsins (CPT-nefndarinnar) um varnir gegn pyntingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu og ábendingum hennar um úrbætur. 

Bætt aðgengi og betri þjónusta

Alma D Möller heilbrigðisráðherra segir ótvírætt að stofnun geðheilsuteymis til að sinna föngum hafi verið stórt skref til úrbóta fyrir þennan viðkvæma hóp. „Ákvörðunin um að flytja teymið til Landspítala er annað mikilvægt skref til að bæta þjónustuna enn frekar og stuðla að samfelldri þjónustu við notendur sem skiptir miklu máli. Undanfarna mánuði hefur verið ráðist í mörg fleiri verkefni sem miða að þessu sama. Settar voru á laggirnar bakvaktir hjúkrunarfræðinga á Hólmsheiði, þjónustuviðmið geðheilsuteymisins voru endurskoðuð með hliðsjón af bestu starfsháttum og eins hefur ráðuneytið styrkt jafningastuðning innan fangelsa til að ná betur til hópsins og greiða fyrir aðgengi að heilbrigðis- og geðheilbrigðisþjónustu.“

„Fangar tilheyra sérlega viðkvæmum hópi einstaklinga sem eiga sama rétt á heilbrigðisþjónustu og aðrir þegnar samfélagsins. Geðheilbrigðisþjónusta er mikilvægur hluti af þörfum þessa hóps og býr Landspítali yfir fagþekkingu til að sinna þeim viðfangsefnum sem upp geta komið í geðheilbrigðisþjónustu við fanga. Því fagna ég flutningi málaflokksins til spítalans. Ég lít svo á að með þessu skrefi séu gefin skýr skilaboð um mikilvægi þess að efla þjónustu við þennan viðkvæma hóp og tel ég það bæði viðeigandi og tímabært“ segir Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala. 

Áhersla á gæði og eftirfylgd

Í heilbrigðisráðuneytinu er nú unnið að nýrri kröfulýsingu um grunnheilbrigðisþjónustu í fangelsum sem byggt verður á í samningum Sjúkratrygginga Íslands. Með kröfulýsingunni verður settur skýr rammi um þjónustuna sem auðveldar bæði mat á gæðum og eftirfylgd með þjónustunni.