14 nóvember 2025

/

Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna fordæmir voðaverk í Súdan

{image.Description}
UN Photo
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í Genf.

Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna kom saman á sérstökum aukafundi í dag til að fjalla um alvarlega stöðu mannréttinda í El Fasher og nágrenni í Súdan.

Ísland, sem á sæti í mannréttindaráðinu, var meðflutningsaðili ályktunar ráðsins sem samþykkt var samhljóða á fundinum. Ályktunin fordæmir víðfeðm mannréttindabrot sem framin hafa verið í El Fasher, þ.á m. dráp á grundvelli kynþáttar, aftökur án dóms og laga, nauðganir og kynbundið ofbeldi og beitingu hungursneyðar sem vopns í átökum.

Í ályktuninni kallar mannréttindaráðið eftir því að rannsóknarnefnd um Súdan rannsaki mannréttindabrot í El Fasher og nágrenni og skili skýrslu fyrir næstu fundalotu ráðsins, sem hefst í febrúar.

Þá lýsir mannréttindaráðið áhyggjum af alvarlegum afleiðingum voðaverkanna á stöðu mannúðarmála í Súdan. Bent er á að hungursneyð ríki í El Fasher þar sem hundruð þúsunda séu innlyksa auk þess sem 21,2 milljónir manna í Súdan búi við fæðuóöryggi. Mannréttindaráðið fordæmir einnig árásir á hjálpar- og heilbrigðisstarfsfólk og kallar eftir tafarlausu og óhindruðu aðgengi fyrir mannúðaraðstoð. Þá fordæmir ráðið utanaðkomandi afskipti sem ýta undir átök og kallar eftir fullri framfylgd vopnasölubanns.

Í sameiginlegri ræðu kölluðu Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin eftir tafarlausu vopnahléi. Ríkin ítrekuðu að grimmdarverkin sem hafi verið framin í El Fasher gætu fallið undir alþjóðlegar skilgreiningar á stríðsglæpum og glæpum gegn mannúð. Mikilvægt væri að tryggja ábyrgðarskyldu og virða hlutverk Alþjóðaglæpadómstólsins.

Viðbótarframlag til Súdan

Borgarastyrjöld hefur geisað í Súdan frá því í apríl 2023 þegar átök brutust út milli hers súdanskra stjórnvalda og uppreisnarsveita RSF. Áætlað er að um 150.000 hafi látist og um 30 milljónir íbúa þurfi á mannúðaraðstoð að halda. Í ljósi hörmulegra aðstæðna hefur utanríkisráðherra ákveðið að veitt verði 40 milljóna króna viðbótarframlag til mannúðaraðstoðar í Súdan sem rúmast innan samþykktra framlaga þróunaraðstoðar ársins. Verður þessu viðbótarframlagi veitt til svæðasjóðs samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) til að bregðast við brýnni þörf í landinu. Sjóðurinn veitir fé bæði til félagasamtaka innan Súdan og stofnana Sameinuðu þjóðanna sem starfa í landinu.

„Ég fagna því að mannréttindaráðið hafi í dag fordæmt víðtæk mannréttindabrot í El Fasher í Súdan og kallað eftir rannsókn á þeim voðaverkum sem framin hafa verið,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Almennir borgarar í Súdan hafa gengið í gegnum ólýsanlegar þjáningar á síðustu tveimur árum og þörfin er gríðarleg. Ísland mun ekki láta sitt eftir liggja og höfum við aukið framlög til mannúðaraðstoðar í Súdan og höldum áfram að kalla eftir því að þau sem bera ábyrgð á stríðsglæpum í Súdan verði látin sæta ábyrgð.“

Sameiginleg yfirlýsing um Súdan

Fyrr í vikunni átti Ísland hlut að sameiginlegri yfirlýsingu 28 ríkja og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins þar sem fordæmt er áframhaldandi og kerfisbundið ofbeldi gegn almennum borgurum í El Fasher í kjölfar þess að uppreisnarherinn RSF náði yfirráðum í borginni. Um væri að ræða alvarleg brot á alþjóðalögum sem gætu fallið undir stríðsglæpi eða glæpi gegn mannúð. Kallað var eftir tafarlausu vopnahléi og réttlæti fyrir fórnarlömb ofbeldisins.