14 nóvember 2025

/

Sjónum beint að lyfjafölsunum á afmælisþingi Lyfjastofnunar

{image.Description}
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra og Rúna Hauksdóttir forstjóri Lyfjastofnunar

Rík ástæða er til að vekja athygli á hættunni sem stafar af fölsuðum lyfjum en vitað er að lyfjafalsanir færast sífellt í aukana. Lyfjastofnun hélt nýverið afmælisþing í tilefni 25 ára afmælis stofnunarinnar og helgaði þingið umfjöllun um fölsuð lyf og ýmsar hliðar þessarar alvarlegu heilbrigðisógnar.

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra flutti opnunarávarp þingsins og óskaði stofnuninni til hamingju með aldarfjórðungs starfsamæli og vel unnin og mikilvæg störf. Lyfjastofnun varð til með sameiningu Lyfjanefndar ríkisins og Lyfjaeftirlits ríkisins og tók hin sameinaða stofnun formlega til starfa 1. nóvember árið 2000.

Í tilkynningu á vef Lyfjastofnunar þar sem fjallað er stuttlega um efni málþingsins kemur m.a. fram að fölsuð lyf eru raunveruleg hætta á Íslandi, en jafnframt að evrópskar lyfjastofnanir sinni öflugu eftirliti og vinni náið saman þegar grunur vaknar um fölsuð lyf í aðfangakeðju löglegra lyfja.

„Þetta er mjög mikilvægt umfjöllunarefni og ég þakka Lyfjastofnun fyrir að efna til þessarar umræðu: „Fölsuð lyf eru alvarleg heilbrigðisógn. Öflugt eftirlit til að sporna gegn því að fölsuð lyf komist á markað skiptir miklu máli. Eins þarf almenningur að vera upplýstur og meðvitaður um áhættuna sem fylgir því að nota lyf ef uppruni þeirra er óljós eða óþekktur. Fólk á aðeins að nota lyf sem því hefur verið ávísað af heilbrigðisstarfsmanni og leyst út eftir öruggum leiðum“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.