14 nóvember 2025
/
Þingsályktun um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár samþykkt á Alþingi
Þingsályktun Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár hefur verið samþykkt af Alþingi.
Um tímamótaskref í náttúruvernd er að ræða þar sem framkvæmdaáætlunin er sú fyrsta sem Alþingi samþykkir eftir að uppfærð lög um náttúruvernd tóku gildi árið 2015.
Framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár 2025-2029 er áætlun um að svæði sem eru mikilvæg með tilliti til líffræðilegrar fjölbreytni Íslands verði sett í forgang um friðlýsingu eða friðun á næstu fjórum árum.
Svæðin sem um ræðir eru: Goðdalur, Hengladalir, Húsey og Eyjasel, Lauffellsmýrar, Oddauppsprettur og Lambeyraruppsprettur og Reykjanes-Þorlákshver. Svæði sem hafa öll hátt verndargildi. Þar er til dæmis að finna fágæta jarðhitalæki, víðáttumiklar mýrar sem gegna hlutverki í baráttunni við loftslagsbreytingar, staðbundnar fisktegundir, og einnig leita fuglategundir á válista þar athvarfs.
„Ég fagna því að við séum hér loksins að samþykkja framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár, fyrstu áætlunina frá því að lög um náttúruvernd voru sett fyrir 12 árum. Þetta skiptir máli. Um leið vinnum við hörðum höndum að því að friðlýsa með lögmætum og bindandi hætti þau svæði sem hafa ratað í verndarflokk rammaáætlunar, um leið vinnum við að því að fjölga stjórnunar- og verndaráætlunum fyrir friðlýst svæði. Við erum að taka til í náttúruverndarmálunum og við gerum það í góðri samvinnu við landeigendur og sveitarfélög um allt land,” segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Þingsályktun um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025–2029