17 nóvember 2025
/
Norrænt samstarf gegn áhrifum tóbaks- og nikótíniðnaðarins á lýðheilsu
Heilbrigðisráðherrar Íslands, Noregs og Danmerkur hafa staðfest sameiginlegan vegvísi, með hliðsjón af grein 5.3 í rammasamningi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um tóbaksvarnir. Vegvísirinn veitir leiðsögn um hvernig megi draga úr áhrifum tóbaks- og nikótíniðnaðarins á lýðheilsustefnu stjórnvalda.
Grein 5.3 er eftirfarandi:
Við undirbúning og framkvæmd stefnumála sinna á sviði lýðheilsu, er varða tóbaksvarnir, skulu aðilar gæta þess, í samræmi við landslög, að í þeim stefnumálum sé ekki að finna áhrif af viðskiptahagsmunum né öðrum hagsmunum tóbaksiðnaðarins.
Markmið sameiginlegu leiðbeininganna er að styðja stjórnvöld við innleiðingu greinar 5.3 og vera vegvísir um hvernig best megi uppfylla þær skyldur sem greinin felur í sér.
- Sameiginleg fréttatilkynning Íslands, Noregs og Danmerkur
- Joint Nordic Guidance for Public Officials on Interacting with the Tobacco Industry (íslensk þýðing væntanleg)