17 nóvember 2025

/

Þjónustutengd fjármögnun við HVE í undirbúningi

{image.Description}
Sjúkrahús HVE á Akranesi: Frá heimsókn heilbrigðisráðherra síðsumars
 Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að semja við Heilbrigðisstofnun Vesturlands um þjónustutengda fjármögnun sjúkrahússþjónustu stofnunarinnar á Akranesi. Góð reynsla er komin af þessari tegund fjármögnunar við Landspítala og Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk). „Áhrifin eru margþætt og stuðla að aukinni skilvirkni, hagkvæmni og gæðum þjónustunnar. Síðast en ekki síst eykur þetta gagnsæi við ákvarðanir um fjármögnun þjónustu af hálfu hins opinbera og eykur fyrirsjáanleika gagnvart þjónustuveitendum svo þetta er allra hagur“ segir heilbrigðisráðherra.

Í heilbrigðisstefnu til ársins 2030 er kveðið á um innleiðingu þjónustutengdrar fjármögnunar sjúkrahúsa sem byggist á DRG-kerfinu (Diagnosis Related Groups (DRG). Notkun DRG-flokkunarkerfisins hófst fyrir mörgum árum á Landspítala þar sem byggst hefur upp mikil þekking á kerfinu. Þjónustutengd fjármögnun klínískrar þjónustu Landspítala varð að veruleika í byrjun árs 2022. Sama ár tók gildi samningur Sjúkratrygginga Íslands og SAk um innleiðingu þjónustutengdrar fjármögnunar við sjúkrahúsið.

Uppfylla skilyrði um skráningu og umfang þjónustu

Sjúkrahús HVE á Akranesi er umdæmissjúkrahús sem þjónar heilbrigðisumdæmis Vesturlands. Auk fyrsta stigs sjúkrahúsþjónustu er þar veitt fjölbreytt sérfræðiþjónusta á sviði lyflækninga, skurðlækninga, bæklunarlækninga, kvensjúkdómalækninga og fæðingarhjálpar, auk endurhæfingar og rannsókna- og myndgreiningarþjónustu.

Þjónustutengd fjármögnun krefst tímanlegrar, vandaðrar og samræmdrar skráningar allra heilbrigðis- og þjónustutengdra upplýsinga af hálfu þjónustuveitenda svo unnt sé að byggja fjármögnun á DRG-kerfinu. Fyrirliggjandi greiningar sýna að skilyrði hvað þetta varðar eru uppfyllt við sjúkrahús HVE á Akranesi. Þá krefst þjónustutengd fjármögnun þess jafnframt að umfang þjónustu/þjónustumagn á viðkomandi stofnun sé yfir tilteknu lágmarksviðmiði. Á sjúkrahúsi HVE á Akranesi eru árlega að jafnaði 2.500 til 3.000 sjúkrahúslegur sem uppfyllir kröfur um umfang og vel það. 

Gert er ráð fyrir að innleiðing þjónustutengdrar fjármögnunar við sjúkrahús HVE hefjist á næsta ári á grundvelli samnings þar sem starfsemin verður aðlöguð þessari aðferðafræði en fjárhagslegt uppgjör samkvæmt DRG hefjist árið 2027. 

Markmið og ávinningur

  • Fjárveitingar taka mið af raunverulegu umfangi þjónustu og raunkostnaði.
  • Aukið gegnsæi við úthlutun fjármagns.
  • Auðveldara að gera áætlanir og setja markmið um magn þjónustu í samræmi við þörf þeirra sem á henni þurfa að halda.
    Stuðlar að aukinni skilvirkni ásamt betra eftirlit með gæðum, umfangi og hagkvæmni þjónustunnar.

Um þjónustutengda fjármögnun

Í stuttu máli byggist þjónustutengd fjármögnun á því að þjónustan er greind niður í flokka samkvæmt sjúkdóma- og aðgerðaflokkunarkerfi. Hver flokkur lýsir umfangi þjónustunnar sem liggur að baki, t.d. vegna tiltekinna aðgerða eða meðferðar við tilteknum sjúkdómum. Umfangið er mælt í svokölluðum DRG einingum. Greiðslur fyrir aðgerð eða meðferð ráðast af fjölda DRG eininga þar sem einingaverðið er fast og fyrir liggur hvað margar DRG einingar hver aðgerð eða meðferð felur í sér að meðaltali.

Nánar um DRG