18 nóvember 2025
/
Mál nr. 30/2025 - Úrskurður
KÆRUNEFND HÚSAMÁLA
ÚRSKURÐUR
uppkveðinn 18. nóvember 2025
í máli nr. 30/2025
A
gegn
B ehf.
Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.
Aðilar málsins eru:
Sóknaraðili: A.
Varnaraðili: B ehf.
Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að endurgreiða sóknaraðila eftirstöðvar af tryggingarfé, 120.000 kr., ásamt vöxtum.
Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka.
Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:
Kæra sóknaraðila, dags. 20. febrúar 2025
Varnaraðila var veittur kostur á að skila greinargerð með tölvupóstum 21. febrúar og 7. apríl 2025.
I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Aðilar gerðu 12. apríl 2024 samning um leigu sóknaraðila á herbergi í eigu varnaraðila að C. Við upphaf leigutíma lagði sóknaraðili tryggingarfé, 210.000 kr., inn á reikning varnaraðila. Samningi aðila lauk í nóvember 2024 og ágreiningur er um þann hluta tryggingarfjár sem varnaraðili hélt eftir, 120.000 kr.
II. Sjónarmið sóknaraðila
Sóknaraðili kveðst hafa skilað herberginu í góðu ástandi að loknum umsömdum uppsagnarfresti 30. nóvember 2024. Hann hafi sent varnaraðila tölvupóst 9. og 19. desember og ýtt á eftir endurgreiðslu tryggingarfjárins. Hann hafi lagt fram 210.000 kr. við upphaf leigutíma og umsamið umsýslugjald hafi átt að draga frá tryggingarfénu. Þann 19. desember hafi varnaraðili kvaðst ætla að „klára allt“ á morgun. Er sóknaraðili spurði degi síðar hvort það væri að styttast í greiðslu hafi varnaraðili svarað því til að það hafi þurft að mála herbergið og hreinsa það. Kostnaður þar um væri 120.000 kr., umsýslugjald við að loka leigusamningi væri 30.000 kr. og því myndi hann draga 150.000 kr. af tryggingarfénu. Sóknaraðili hafi mótmælt kröfu vegna málningar og þrifa með tölvupósti 27. desember. Sóknaraðili kveður varnaraðila hvorki hafa svarað símtölum né tölvupóstum eftir það.
III. Niðurstaða
Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir nefndinni og verður niðurstaðan því byggð á þeim skýringum og gögnum sem sóknaraðili hefur lagt fyrir nefndina. Sóknaraðili krefst þess að varnaraðili endurgreiði honum eftirstöðvar tryggingarfjár að fjárhæð 120.000 kr.
Í 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 segir að leigusali megi ekki ráðstafa tryggingarfé eða taka af því án samþykkis leigjanda nema fyrir liggi endanleg niðurstaða um bótaskyldu leigjanda. Þó sé leigusala jafnan heimilt að ráðstafa tryggingarfénu til greiðslu á vangoldinni leigu, bæði á leigutímanum og við lok hans.
Í 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 er kveðið á um að leigusali skuli svo fljótt sem verða megi og eigi síðar en innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðis gera leigjanda skriflega grein fyrir því hvort hann geri kröfu í tryggingarfé samkvæmt 4. tölul. 1. mgr. eða hafi uppi áskilnað um það, sbr. einnig 1. mgr. 64. gr. Hafi leigusali ekki gert kröfu samkvæmt 1. málsl. skuli hann skila leigjanda tryggingarfénu ásamt vöxtum án ástæðulauss dráttar og skuli hann greiða leigjanda dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá þeim degi er fjórar vikur eru liðnar frá skilum leiguhúsnæðis til þess dags er hann skilar tryggingarfénu. Ákvæði 5. mgr. kveður á um að geri leigusali kröfu í tryggingarféð innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðisins samkvæmt 4. mgr. skuli leigjandi tilkynna leigusala skriflega hvort hann hafni eða fallist á kröfuna innan fjögurra vikna frá móttöku kröfunnar. Jafnframt segir að hafni leigjandi kröfu leigusala beri honum að vísa ágreiningi um bótaskyldu leigjanda til kærunefndar húsamála eða höfða mál um bótaskyldu hans innan fjögurra vikna frá þeim degi er leigjandi hafnaði kröfunni, ella skuli hann skila leigjanda tryggingarfénu ásamt vöxtum án ástæðulauss dráttar.
Leigutíma aðila lauk 30. nóvember 2024. Varnaraðili gerði skriflega kröfu í tryggingarfé sóknaraðila 20. desember sama ár og sóknaraðili hafnaði henni 27. sama mánaðar, að því frátöldu að hann samþykkti greiðslu svonefnds umsýslugjalds. Bar varnaraðila að vísa ágreiningi um bótaskyldu sóknaraðila til kærunefndar eða höfða mál um bótaskyldu hans innan fjögurra vikna frá þeim degi. Varnraðili gerði það ekki en ágreiningur aðila kom til meðferðar hjá kærunefnd með kæru sóknaraðila 20. febrúar 2025. Ber varnaraðila því þegar af þeirri ástæðu að skila sóknaraðila 120.000 kr. af tryggingarfénu ásamt vöxtum, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, frá þeim degi sem tryggingarféð var lagt fram en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim degi er fjórar vikur voru liðnar frá skilum leiguhúsnæðis, 29. desember 2024, til greiðsludags.
Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 9. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.
ÚRSKURÐARORÐ:
Varnaraðila ber að endurgreiða tryggingarfé að fjárhæð 120.000 kr. ásamt vöxtum, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, frá þeim degi er tryggingarféð var lagt fram en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá 29. desember 2024 til greiðsludags.
Reykjavík, 18. nóvember 2025
Auður Björg Jónsdóttir
Eyþór Rafn Þórhallsson Þorvaldur Hauksson