18 nóvember 2025
/
Mál nr. 31/2025 - Úrskurður
KÆRUNEFND HÚSAMÁLA
ÚRSKURÐUR
uppkveðinn 18. nóvember 2025
í máli nr. 31/2025
A
gegn
B
Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.
Aðilar málsins eru:
Sóknaraðili: A.
Varnaraðili: B.
Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að endurgreiða sóknaraðila eftirstöðvar af tryggingarfé, 90.000 kr., ásamt vöxtum.
Varnaraðili hefur ekki uppi sérstaka kröfu í málinu.
Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:
Kæra sóknaraðila, dags. 24. febrúar 2025.
Greinargerð varnaraðila, dags. 23. apríl 2025.
I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Þann 5. janúar 2025 tók sóknaraðili á leigu herbergi innan íbúðar að C sem varnaraðili hafði til leigu. Sóknaraðili gerði athugasemdir við umgengni varnaraðila og 2. febrúar krafðist varnaraðili þess að sóknaraðili flytti út. Þann 5. febrúar sendi varnaraðili sóknaraðila skilaboð þar sem fram kom að hann yrði að flytja úr húsnæðinu sem fyrst þar sem eigandi þess hafi ætlað að selja það. Færi hann ekki út fyrir kl. 16:30 sama daga myndi varnaraðili sjálfur fjarlægja eigur hans. Sóknaraðili varð við áskoruninni og flutti út degi síðar í samráði við varnaraðila. Varnaraðili hefur ekki endurgreitt sóknaraðila tryggingarfé, sem var alls 110.000 kr.
II. Sjónarmið sóknaraðila
Sóknaraðili kveðst hafa gert samkomulag við varnaraðila um að hann myndi halda eftir 20.000 kr. af tryggingarfé vegna leigu 1.-5. febrúar 2025 og endurgreiða honum 90.000 kr. Varnaraðili hafi aftur á móti ekki staðið við gefin loforð og hætt að svara sóknaraðila.
III.
Varnaraðili kveðst ekki skilja hví málið sé í þessu ferli þar sem aldrei hafi staðið annað til en að endurgreiða sóknaraðila. Hann þurfi aðeins að sýna smá þolinmæði.
IV. Niðurstaða
Sóknaraðili krefst þess að varnaraðili endurgreiði honum 90.000 kr. af tryggingarfé sem hann lagði fram við upphaf leigutíma, 5. janúar 2025.
Í 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 segir að leigusali megi ekki ráðstafa tryggingarfé eða taka af því án samþykkis leigjanda nema fyrir liggi endanleg niðurstaða um bótaskyldu leigjanda. Þó sé leigusala jafnan heimilt að ráðstafa tryggingarfénu til greiðslu á vangoldinni leigu, bæði á leigutímanum og við lok hans.
Í 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 er kveðið á um að leigusali skuli svo fljótt sem verða megi og eigi síðar en innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðis gera leigjanda skriflega grein fyrir því hvort hann geri kröfu í tryggingarfé samkvæmt 4. tölul. 1. mgr. eða hafi uppi áskilnað um það, sbr. einnig 1. mgr. 64. gr. Hafi leigusali ekki gert kröfu samkvæmt 1. málsl. skuli hann skila leigjanda tryggingarfénu ásamt vöxtum án ástæðulauss dráttar og skuli hann greiða leigjanda dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá þeim degi er fjórar vikur eru liðnar frá skilum leiguhúsnæðis til þess dags er hann skilar tryggingarfénu.
Leigutíma aðila lauk 6. febrúar 2025. Varnaraðili hefur ekki gert skriflega kröfu í tryggingarfé og gerir raunar ekki athugasemd við kröfu sóknaraðila. Ber varnaraðila því þegar af þeirri ástæðu að skila sóknaraðila 90.000 kr. af tryggingarfénu ásamt vöxtum, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, frá 5. janúar 2025 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá 7. mars 2025, til greiðsludags.
Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 9. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.
ÚRSKURÐARORÐ:
Varnaraðila ber að endurgreiða sóknaraðila tryggingarfé að fjárhæð 90.000 kr. ásamt vöxtum, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, frá 5. janúar 2025 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá 7. mars 2025 til greiðsludags.
Reykjavík, 18. nóvember 2025
Auður Björg Jónsdóttir
Eyþór Rafn Þórhallsson Þorvaldur Hauksson