18 nóvember 2025
/
Mál nr. 50/2025 - Úrskurður
KÆRUNEFND HÚSAMÁLA
ÚRSKURÐUR
uppkveðinn 18. nóvember 2025
í máli nr. 50/2025
A
gegn
B
Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.
Aðilar málsins eru:
Sóknaraðili: A.
Varnaraðili: B.
Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að greiða honum 205.000 kr. í skaðabætur vegna skemmda á hinu leigða.
Krafa varnaraðila er að kröfu sóknaraðila verði hafnað og að honum verði úrskurðaður málskostnaður úr hendi sóknaraðila.
Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:
Kæra sóknaraðila, dags. 10. apríl 2025.
Greinargerð varnaraðila, dags. 5. maí 2025.
Athugasemdir sóknaraðila, dags. 12. maí 2025.
I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Varnaraðili leigði herbergi innan íbúðar sóknaraðila að C, frá október 2024 til mánaðamóta mars og apríl 2025. Ágreiningur er um kröfu sóknaraðila um að varnaraðili bæti honum kostnað við úrbætur á myglu sem myndast hafi í glugga í herberginu.
II. Sjónarmið sóknaraðila
Sóknaraðili kveðst hafa leiðbeint varnaraðila um að hann þyrfti að lofta út úr herberginu en hann hafi í fyrstu ekki fylgt því. Seinni hluta leigutímans hafi hann aftur á móti alltaf verið með gluggann á herbergi sínu opinn þannig að bæði hafi snjóað og rignt inn. Mygla hafi því myndast í herbergi hans og kostnaður við úrbætur sé alls 205.000 kr.
III. Sjónarmið varnaraðila
Varnaraðili kveðst á engan hátt geta borið ábyrgð á myglu í húsnæði sóknaraðila. Þá sé því vísað á bug að hann hafi ekki loftað um herbergið eða skilið glugga eftir galopinn þannig að úrkoma hafi leitað inn. Hann hafi þvert á móti reynt að ganga í hvívetna vel um hið leigða rými. Þá sé krafa sóknaraðila í heild sinni sem og sundurliðun á fjárhæðum ótrúverðug. Þá hefði sóknaraðili þurft að afla sér sönnunar á hinu meinta tjóni.
IV. Athugasemdir sóknaraðila
Sóknaraðili ítrekaði fyrri kröfur.
V. Niðurstaða
Ágreiningur er um hvort varnaraðila beri að bæta sóknaraðila meint tjón á glugga á herbergi sem hann leigði af honum. Aðilar gerðu ekki úttekt á hinu leigða í samræmi við fyrirmæli 69. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994, hvorki við upphaf leigutíma né lok. Þá hefur sóknaraðili ekki stutt kröfur sínar gögnum, öðrum en myndum, og kröfufjárhæðin virðist byggð á hans eigin hugmyndum án þess að hún styðjist við nokkur rök eða gögn. Gegn mótmælum varnaraðila telur kærunefnd með öllu ósannað að hann hafi skilað af sér eigninni í óviðunandi ástandi eða valdið tjóni á henni og hafnar kröfu sóknaraðila.
Í 8. mgr. 85. gr. laga nr. 36/1994 segir að ef kæra er bersýnilega tilefnislaus að mati kærunefndarinnar geti nefndin gert sóknaraðila að greiða varnaraðila málskostnað og hefur varnaraðili uppi kröfu hér um. Þar sem ágreiningur er milli sóknaraðila og varnaraðila, sem aðila leigusamnings, er að mati nefndarinnar ekki unnt að fallast á að kæra sóknaraðila hafi verið bersýnilega tilefnislaus. Er kröfu um málskostnað því hafnað.
Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur.
ÚRSKURÐARORÐ:
Kröfu sóknaraðila um skaðabætur úr hendi varnaraðila er hafnað.
Kröfu varnaraðila um málskostnað er hafnað.
Reykjavík, 18. nóvember 2025
Auður Björg Jónsdóttir
Eyþór Rafn Þórhallsson Þorvaldur Hauksson