18 nóvember 2025

/

Mál nr. 53/2025 - Úrskurður

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 18. nóvember 2025

í máli nr. 53/2025

 

A

gegn

Þrotabúi B ehf.

 

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur. 

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðili: A.

Varnaraðili: Þrotabú B ehf. Upphaflega var varnaraðili B ehf. en bú þess var tekið til gjaldþrotaskipta […] og tók þrotabú félagsins þá við aðild málsins.

Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að greiða henni 100.000 kr. vegna umsamins afsláttar af leigu vegna janúar 2025.

Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka og skiptastjóri kvaðst ekki ætla að hafa afskipti af málinu að öðru leyti en að lýsa því yfir að kröfu sóknaraðila sé hafnað.

Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:

Kæra sóknaraðila, dags. 20. apríl 2025.

Samskipti við skiptastjóra varnaraðila í ágúst 2025.

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Sóknaraðili tók á leigu íbúð í eigu B ehf. frá 24. desember 2024 til 31. janúar 2025 er þriðji aðili keypti eignina og gerði sjálfstæðan samning við sóknaraðila. Félagið hafi lofað tilteknum úrbótum á eigninni og þar sem það hafi aðeins náð að standa við hluta þeirra í janúar 2025 lofaði hann sóknaraðila að leggja inn á hana 100.000 kr. sem afslátt vegna óþæginda sem tafir á úrbótum hefðu valdið henni. Greiðslan hafi þó ekki borist.

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðili kveður B ehf. hafa lofað að leggja inn á reikning hennar 100.000 kr. vegna tafa sem urðu á nánar tilgreindum úrbótum á eigninni og leggur fram skilaboð því til sönnunar.

III. Niðurstaða           

Sem fyrr greinir var bú B ehf. tekið til gjaldþrotaskipta rúmum mánuði eftir að kæra sóknaraðila barst nefndinni. Með hliðsjón af þeim sjónarmiðum sem búa að baki 2. mgr. 116. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. verður litið svo á að þrotabú félagsins hafi tekið við aðild málsins. Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka að öðru leyti en því að krefjast þess að kröfum sóknaraðila verði hafnað og byggist niðurstaða nefndarinnar því á málatilbúnaði og gögnum sóknaraðila.

Kveðið er á um í 2. mgr. 21. gr. húsaleigulaga, nr. 36/1994, að leiði viðgerðar-, endurbóta- eða viðhaldsvinna á vegum leigusala til verulega skertra afnota eða afnotamissis að mati úttektaraðila, sbr. XIV. kafla, skuli leigusali bæta leigjanda það með hlutfallslegum afslætti af leigugjaldi eða á annan þann hátt er aðilar koma sér saman um. Viðhaldsvinnu var ekki lokið í janúar, svo sem aðilar höfðu samið um, og með skilaboðum kvaðst B ehf. ætla að greiða sóknaraðila 100.000 kr. í afslátt vegna mánaðarins. Komu aðilar sér þannig saman um afslátt á grundvelli 21. gr. laganna og er varnaraðili bundinn af því samkomulagi.

Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 9. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Varnaraðila ber að greiða sóknaraðila 100.000 kr.

 

Reykjavík, 18. nóvember 2025

 

 

Auður Björg Jónsdóttir

 

 

            Eyþór Rafn Þórhallsson                                                   Þorvaldur Hauksson