18 nóvember 2025
/
Mál nr. 55/2025 - Úrskurður
KÆRUNEFND HÚSAMÁLA
ÚRSKURÐUR
uppkveðinn 18. nóvember 2025
í máli nr. 55/2025
A og B
gegn
C
Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.
Aðilar málsins eru:
Sóknaraðilar: A og B, bæði skráð til heimilis að D.
Varnaraðili: C.
Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að endurgreiða þeim 355.000 kr. af tryggingarfé ásamt vöxtum.
Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka þrátt fyrir áskoranir þar um.
Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:
Kæra sóknaraðila, dags. 9. apríl 2025
I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Aðilar gerðu samning um leigu sóknaraðila á íbúð varnaraðila 1. september 2024 til 28. febrúar 2025. Leigugjaldið var 245.000 kr. á mánuði og sóknaraðilar lögðu fram tryggingafé, 600.000 kr. Mánuði fyrir leigulok fengu sóknaraðilar upplýsingar um að selja ætti eignina á uppboði og héldu eftir greiðslu leigu fyrir þann mánuð. Sóknaraðilar vilja fá tryggingarfé endurgreitt að frádreginni leigu vegna eins mánaðar, alls 355.000 kr. Varnaraðili hefur ekki svarað sóknaraðilum.
II. Sjónarmið sóknaraðila
Sóknaraðilar kveða varnaraðila ekki hafa gert kröfu í tryggingafé og beri að skila því að því frátöldu að þau heimili að 245.000 kr. sé ráðstafað til greiðslu síðasta mánaðar leigutíma.
III. Niðurstaða
Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka. Úrskurður verður því kveðinn upp í málinu á grundvelli málatilbúnaðar sóknaraðila og þeim gögnum sem þau hafa lagt fram.
Í 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 er kveðið á um að leigusali skuli svo fljótt sem verða megi og eigi síðar en innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðis gera leigjanda skriflega grein fyrir því hvort hann geri kröfu í tryggingarfé samkvæmt 4. tölul. 1. mgr. eða hafi uppi áskilnað um það, sbr. einnig 1. mgr. 64. gr. Hafi leigusali ekki gert kröfu samkvæmt 1. málsl. skuli hann skila leigjanda tryggingarfénu ásamt vöxtum án ástæðulauss dráttar og skuli hann greiða leigjanda dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá þeim degi er fjórar vikur eru liðnar frá skilum leiguhúsnæðis til þess dags er hann skilar tryggingarfénu.
Leigutíma lauk 28. febrúar 2025 og gerði varnaraðili ekki kröfu í tryggingarféð. Ber varnaraðila því, þegar af þeirri ástæðu, að skila sóknaraðilum eftirstöðvum tryggingarfjárins, 355.000 kr., ásamt vöxtum, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, frá þeim degi er tryggingarfé var lagt fram en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim degi er fjórar vikur voru liðnar frá skilum húsnæðis til greiðsludags. Þar sem íbúðinni var skilað 28. febrúar 2025 reiknast dráttarvextir frá 29. mars 2025.
Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 9. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.
ÚRSKURÐARORÐ:
Varnaraðila ber að endurgreiða sóknaraðilum tryggingarfé að fjárhæð 355.000 kr. ásamt vöxtum, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, frá 1. september 2024, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá 29. mars 2025 til greiðsludags.
Reykjavík, 18. nóvember 2025
Auður Björg Jónsdóttir
Eyþór Rafn Þórhallsson Þorvaldur Hauksson