18 nóvember 2025
/
Mál nr. 84/2025 - Úrskurður
KÆRUNEFND HÚSAMÁLA
ÚRSKURÐUR
uppkveðinn 18. nóvember 2025
í máli nr. 84/2025
A
gegn
B og C
Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.
Aðilar málsins eru:
Sóknaraðili: A.
Varnaraðilar: B og C.
Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að henni sé heimilt að ganga að bankaábyrgð varnaraðila hjá D vegna leiguvanskila að fjárhæð 320.000 kr.
Krafa varnaraðila er að kröfu sóknaraðila verði hafnað.
Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:
Kæra sóknaraðila, dags. 12. júní 2025.
Greinargerð varnaraðila, dags. 25. júní 2025
Athugasemdir sóknaraðila, mótteknar 1. júlí 2025
I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Aðilar gerðu samning um leigu varnaraðila á íbúð sóknaraðila að E frá 1. september 2024 til 31. mars 2025. Varnaraðilar greiddu ekki síðasta mánuð leigutíma en hafna allt að einu kröfu sóknaraðila í tryggingu þeirra vegna eins mánaðar leiguvanskila.
II. Sjónarmið sóknaraðila
Sóknaraðili kveður varnaraðila ekki hafa greitt umsamið leigugjald vegna maí 2025, 320.000 kr., og hún því gert kröfu um greiðslu úr ábyrgðartryggingu varnaraðila, sem er sömu fjárhæðar. Varnaraðilar hafi með stuttum fyrirvara óskað eftir að losna fyrr undan samningi aðila vegna breyttra aðstæðna hjá þeim sem sóknaraðili hafi ekki getað fallist á enda samningur aðila tímabundinn og óuppsegjanlegur. Varnaraðilar hafi skilað íbúðinni 20. maí 2025.
III. Sjónarmið varnaraðila
Varnaraðili, C, lýsir erfiðum aðstæðum sem hafi komið upp hjá henni seinni hluta leigutíma. Þá hafi hún fengið aðra íbúð til leigu frá 1. maí 2025 og sóknaraðili sagt að hún mætti fara úr eigninni hvenær sem er. Þegar hún hafi tilkynnt fyrirhugaðan flutning hafi sóknaraðili gert kröfu um leigu vegna maí en boðið að hún yrði greidd á fjórum mánuðum sem ekki hafi verið mögulegt fyrir varnaraðila.
IV. Athugasemdir sóknaraðila
Í athugasemdum sínum ítrekar sóknaraðili fyrri sjónarmið.
V. Niðurstaða
Ágreiningslaust er að varnaraðilar greiddu ekki leigu vegna maí 2025 og að þau afhentu varnaraðila umráð eignarinnar 20. þess mánaðar þó umsamin leigulok hafi verið 31. maí 2025. Hefur ekkert komið fram í málinu sem leitt getur til þess að varnaraðilum hafi ekki borið að greiða leigu vegna maí 2025. Sóknaraðila er því heimilt að fá leiguvanskilin greidd úr tryggingu varnaraðila.
Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur.
ÚRSKURÐARORÐ:
Sóknaraðila er heimilt að fá leiguvanskil, 320.000 kr., greidd úr tryggingu varnaraðila.
Reykjavík, 18. nóvember 2025
Auður Björg Jónsdóttir
Eyþór Rafn Þórhallsson Þorvaldur Hauksson