19 nóvember 2025
/
Mál nr. 112/2025 Úrskurður 19. nóvember 2025
Mál nr. 112/2025 Aðlögun kenninafns: Margrétardóttir
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 13. október 2025, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XX um að kenna sig við móðir sína þannig að nafn hennar, Malgorzata, verði aðlagað að íslensku og kenninafn hennar verði Margrétardóttir.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á móðurkenninguna Margrétardóttir.