19 nóvember 2025
/
Mál nr. 544/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 544/2025
Miðvikudaginn 19. nóvember 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 31. ágúst 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. ágúst 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 27. desember 2024 og var umsóknin samþykkt 16. janúar 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. ágúst 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hennar til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 4. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 31. ágúst 2025. Með bréfi, dags. 3. september 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 17. október 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. október 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi tekur fram að hún telji að ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið byggð á ónákvæmum upplýsingum og mögulegum annmörkum í málsmeðferð. Kærandi telji að samskipti og leiðbeiningar frá starfsfólki á skrifstofu Vinnumálastofnunar á B hafi ekki verið fullnægjandi. Hún hafi ítrekað reynt að ná sambandi við starfsmann með símtölum og tölvupósti án þess að fá svar. Engin viðbrögð hafi borist við erindum hennar og því hafi hún setið eftir án skýrra leiðbeininga um skyldur sínar og réttindi. Kærandi hafi ekki verið upplýst um að tímabundin dvöl utan B gæti haft áhrif á rétt hennar til atvinnuleysisbóta.
Að sögn kæranda hafði hún dvalið í Reykjavík á umræddu tímabili. Hún hafi verið í þeirri trú að stutt ferðalag hefði ekki áhrif á bótarétt, sérstaklega þar sem hún hafi upplýst Vinnumálastofnun um aðstæður sínar. Kærandi hafi sent tölvupóst með skýringu á sinni stöðu og ósk um nýjan viðtalstíma. Hún hafi ekki fengið svar heldur verið boðuð á annan fund morguninn eftir, án viðeigandi fyrirvara. Kærandi telji að slíkt verklag sé ekki sanngjarnt.
Kærandi bendir á að í ákvörðuninni komi fram að bætur hennar hafi verið felldar niður 29. júlí 2024. Að sögn kæranda sé ekki um réttar upplýsingar að ræða þar sem hún hafi verið í starfi á þeim tíma og hefði undir höndum gögn því til staðfestingar. Hún hafi ekki fengið neinar tilkynningar frá Vinnumálastofnun árið 2024 um slíka niðurfellingu bóta. Eina niðurfellingin sem kærandi muni eftir hafi átt sér stað 17. mars 2025 og hún tengist ofgreiðslu vegna tekna, ekki fjarveru frá fundi.
Kærandi telji að framkoma starfsmanns Vinnumálastofnunar á B hafi verið ófagleg og vanvirðandi. Hún hafi orðið vör við óviðeigandi athugasemdir og að starfsmaður hafi ítrekað sýnt af sér áhugaleysi eða afskiptaleysi gagnvart málum hennar. Kæranda hafi jafnframt borist sambærilegar frásagnir frá öðrum einstaklingum sem hafi átt í erfiðum samskiptum við sama starfsmann sem að hennar mati veki upp spurningar um jafnræði og réttláta málsmeðferð.
Kærandi byggir á því að ákvörðun, dags. 27. ágúst 2025, sé reist á ónákvæmri upplýsingagjöf og skorti á viðeigandi samskiptum frá þjónustuskrifstofunni á B. Með vísan til framangreinds óski kærandi eftir því að hin kærða ákvörðun verði endurskoðuð og felld úr gildi. Einnig að tryggt verði að málið verði tekið til nýrrar meðferðar á grundvelli réttra og staðfestra upplýsinga.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 27. desember 2024. Með erindi, dags. 16. janúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Kærandi hafi sætt þriggja mánaða viðurlögum þann 17. mars 2025 vegna ótilkynntra tekna og vinnu en kærandi hafi einnig sætt viðurlögum vegna fjarveru í vinnumarkaðsúrræði þann 29. júlí 2024.
Þann 11. ágúst 2025 hafi kærandi verið boðuð í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á B þann 12. ágúst 2025, klukkan 11:45. Athygli hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysisbóta. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi verið vakin athygli á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hennar, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 11. september 2025, klukkan 11:16. Kærandi hafi ekki mætt í viðtalið en hafi boðað forföll og hafi því verið boðuð í nýtt viðtal.
Þann 12. ágúst 2025 hafi kærandi aftur verið boðuð í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á B þann 13. ágúst 2025, klukkan 12:30. Athygli hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysisbóta. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi verið vakin athygli á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hennar, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 12. ágúst 2025, klukkan 12:12. Kærandi hafi hvorki mætt í viðtalið né boðað forföll.
Þann 14. ágúst 2025 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi með ósk um skriflegar skýringar vegna fjarveru á boðað námskeið. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila skýringum. Skýringar frá kæranda hafi borist með bréfum mótteknum 19. og 20. ágúst 2025 þar sem fram komi að kærandi hafi verið í sálfræðimeðferð á sama tíma og fyrra viðtalið hefði átt að fara fram. Hún hafi hvorki tekið eftir skilaboðum í síma sínum né tölvupósti vegna boðunar í seinna viðtalið þar sem hún hafi verið að aðstoða fjölskyldu sína við áríðandi erindi. Kærandi hafi sent skjáskot af tölvupósti sem hún hafi sent til að tilkynna að hún kæmist ekki á fundinn. Sá tölvupóstur sem kærandi vísi til í svarbréfi sínu og hafi átt að skýra fjarveru hennar sé dagsettur 13. maí 2025.
Með erindi, dags. 27. ágúst 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar hefðu verið stöðvaðar sökum þess að hún hafi ekki mætt í boðað viðtal þann 13. ágúst 2025. Þar sem um hafi verið að ræða þriðju viðurlög á sama bótatímabili hefðu greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda verið stöðvaðar.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h.] lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.
Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um atvinnuleysisbætur komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund þann 13. ágúst 2025. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ þar sem tilgreind hafi verið tímasetning og staðsetning. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Í 1. mgr. 58. gr. segi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Í 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi einnig fram að sá sem hafi áður sætt viðurlögum skv. 57-59. gr. eða biðtíma skv. 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggi fyrir, ef hann hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr.
Í 4. mgr. 61. gr. segi svo að þegar atvik endurtaki sig á sama tímabili þurfi umsækjandi að uppfylla skilyrði 31. gr. til að eiga rétt á greiðslum að nýju.
Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni í umrætt viðtal þegar kallað hefði verið eftir þeim, en þær lúti að því að henni hafi verið ómögulegt að mæta í viðtalið vegna þess að hún hafi ekki tekið eftir því að hún hefði fengið boðun, enda sé einstaklingum ómögulegt að fylgjast með tölvupóstum allan sólarhringinn (e. „It‘s not like everyone is always able to access their emails 24/7“). Kærandi hafi af þeim sökum ekki getað mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.
Vinnumálastofnun bendir á að boðun á námskeiðið hafi verið send bæði með tölvupósti á skráð netfang og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda en það komi skilmerkilega fram að tilkynningar um forföll skyldu berast án ástæðulausrar tafar. Engin tilkynning um forföll hafi borist en um hafi verið að ræða annað skipti sem stofnunin hafi boðað kæranda á fund eftir að hún hafi boðað forföll daginn áður. Í ljósi framangreinds, og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga.
Í ljósi þess að kærandi hafi ekki mætt á boðuð vinnumarkaðsúrræði í tvígang á sama bótatímabili, auk þess að hafa sætt viðurlögum vegna ótilkynntra tekna, beri henni nú að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 4. mgr. 61. gr. Greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda séu því stöðvaðar þar til hún hafi áunnið sér rétt til nýs bótatímabils, sbr. 31. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að stöðva skuli greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 58. gr., sbr. 4. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 4. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Kærandi var þann 11. ágúst 2025 boðuð í viðtal sem fara átti fram daginn eftir á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á B. Kærandi boðaði forföll samdægurs og kvaðst eiga tíma hjá sálfræðingi á svipuðum tíma og viðtalið ætti að eiga sér stað. Kærandi var þann 12. ágúst 2025 aftur boðuð í viðtal sem fara átti fram þann 13. ágúst 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að hún myndi ekki fá nýja boðun í viðtal og að ástæður forfalla yrðu sendar Greiðslustofu til skoðunar þar sem ákvörðun yrði tekin um möguleg viðurlög í formi greiðslustöðvunar. Boðunin var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og í farsíma. Kærandi hvorki mætti í viðtalið né boðaði forföll.
Í skýringum kæranda til Vinnumálastofnun vegna fjarverunnar kemur fram að hún hafi ekki séð skilaboð stofnunarinnar fyrr en daginn eftir þar sem hún hafi verið að aðstoð vin sinn með áríðandi mál.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru í boðað viðtal.
Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Þá segir í 4. mgr. 61. gr. að ef atvik sem lýst sé í 1. málsl. 1. mgr. endurtaki sig á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.
Samkvæmt 29. gr. laga nr. 54/2006 getur sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur, nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standa yfir. Í 31. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.
Samkvæmt gögnum sætti kærandi niðurfellingu bótaréttar á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006 þann 29. júlí 2024 og aftur þann 17. mars 2025 á grundvelli 59. gr. laganna. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kemur með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. ágúst 2025, til ítrekunaráhrifa samkvæmt 4. mgr. 61. gr. laganna og á kærandi því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hún uppfyllir skilyrði 31. gr. laganna, þ.e. eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hún fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. ágúst 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir