19 nóvember 2025
/
Mál nr. 572/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 572/2025
Miðvikudaginn 19. nóvember 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 10. september 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvarðanir Vinnumálastofnunar, dags. 9. september 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að synja umsókn hans um atvinnuleysisbætur.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 11. júní 2025 og var umsóknin samþykkt 22. júlí 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. september 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar vegna ótilkynntrar ferðar erlendis. Með bréfi, dagsettu sama dag, var kæranda einnig tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið synjað á grundvelli c. liðar 1. mgr. 13. gr. laganna þar sem hann væri ekki staddur á Íslandi.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 10. september 2025. Með bréfi, dags. 11. september 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 17. október 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. október 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hafa sótt um atvinnuleysisbætur í byrjun júlí 2025. Hann hafi áður unnið sem leigubílstjóri á næturnar en vegna aðstæðna í fjölskyldu hans hafi hann ekki getað unnið að degi til. Að sögn kæranda hafi dóttir hans ekki hafið leikskólagöngu á þeim tíma en hefði verið samþykkt í leikskóla frá 3. september 2025. Hann hafi ekki getað tekið að sér dagvinnu þar sem eiginkona hans starfi á dagvinnutíma. Kærandi greinir frá því að bifreiðin sem hann hafi ekið fyrir annan aðila hafi verið tekin af honum um mitt sumar þar sem eigandinn hefði þurft á henni að halda. Hann hafi reynt að finna aðra bifreið fyrir næturvinnuna, án árangurs Kærandi hafi því sótt um atvinnuleysisbætur á þeirri forsendu að hann gæti ekki unnið fyrr en dóttir hans fengi leikskólaplás þar sem eiginkona hans væri í dagvinnu.
Áður en umsókn kæranda hafi verið samþykkt hafi þau fjölskyldan farið í sumarfrí erlendis. Í fríinu hafi systir kæranda, sem búi í B, veikst alvarlega vegna hjartasjúkdóms. Kærandi sé eini fjölskyldumeðlimur hennar í Evrópu og því ákveðið að senda eiginkonu sína og börn heim en sjálfur hafi hann dvalið áfram hjá systur sinni í um þrjár vikur.
Kærandi viðurkenni að hann hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um ferð sína erlendis á meðan umsókn hans hefði verið í vinnslu. Hann hafi fengið boð um viðtal hjá stofnuninni 22. ágúst en ekki getað mætt þar sem hann hafi enn verið erlendis. Hann hafi snúið aftur til Íslands 29. ágúst. Vegna þessa hafi Vinnumálastofnun fellt niður bótarétt hans og krafist endurgreiðslu þeirra bóta sem hann hafði þegar fengið sem nemi greiðslum fyrir tvo mánuði. Kærandi hafi sótt um bætur í góðri trú þar sem hann hefði gert grein fyrir aðstæðum sínum við umsókn og Vinnumálastofnun hafi samþykkt hana á þeim grundvelli. Kærandi hafi ekki fjárhagslega getu til að endurgreiða bæturnar og óski því eftir endurskoðun ákvörðunarinnar.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 11. júní 2025. Kærandi segi í umsókn sinni að hann geti hafið störf frá 25. júní 2025. Með erindi, dags. 22. júlí 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 89%.
Þann 13. ágúst 2025, hafi kæranda verið sent erindi og hann boðaður á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík þann 15. ágúst 2025, klukkan 09:00. Kærandi hafi hvorki mætt á fundinn né tilkynnt um forföll. Þann 21. ágúst 2025 hafi kæranda aftur verið sent erindi og hann boðaður á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík þann 22. ágúst 2025, klukkan 10:45. Kærandi hafi verið upplýstur að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll þyrfti að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið send á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Ásamt því hafi verið vakin athygli á nýjum samskiptum, með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 21. ágúst 2025, klukkan. 09:59.
Kærandi hafi svarað boðun með tölvupósti þann 21. ágúst 2025 þar sem fram komi að hann sé á ferðalagi á leið til B snemma morguns þann 22. ágúst 2025 vegna neyðarástands í fjölskyldunni og geti því ekki mætt á fundinn. Að sögn kæranda kæmi hann ekki aftur til landsins fyrr en undir lok mánaðarins. Þá hafi kærandi sagst hafa tilkynnt um þetta á vefsíðu Vinnumálastofnunar. Kærandi hafi skráð orlof frá 22. ágúst til 28. ágúst 2025 á „Mínum síðum“ þann 21. ágúst. 2025, klukkan 20:10 í kerfi stofnunarinnar.
Með erindi, dags. 2. september 2025, hafi verið óskað eftir gögnum um ferðir kæranda erlendis. Þann 4. september 2025 hafi borist gögn og svar frá kæranda þar sem fram komi að hann hafi þurft að sinna systur sinni og börnum hennar í B vegna veikinda hennar. Með svari kæranda hafi hann skilað flugfarseðlum sem hefðu sýnt að kærandi hafi átt miða frá Keflavík til C þann 22. ágúst 2025 og einnig yfirlit frá flugfélaginu Play sem hafi átt að staðfesta flug kæranda frá C til Keflavíkur 29. ágúst 2025 og aftur út til C þann 7. september 2025.
Þann 8. september 2025 hafi kærandi verið upplýstur um að gögn sem hefðu varðað flug hans væru ófullnægjandi en kærandi hafi skilað inn skýringum um að þessi gögn væru þau einu sem væru tiltæk þar sem að brottfararspjöld (e. boarding pass) hefðu ekki verið tiltæk rafrænt og að hann hafi hent pappírseintakinu sem hann hefði fengið á flugvellinum.
Með erindi, dags. 9. september 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði þar sem hann hefði látið hjá líða að tilkynna stofnuninni fyrir fram um dvöl sína erlendis. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Kæranda hafi einnig verið sent bréf þann 9. september 2025 þar sem honum hafi verið tilkynnt um stöðvun frekari greiðslna atvinnuleysisbóta honum til handa á grundvelli þess að hann væri ekki verið staddur á Íslandi. Sú ákvörðun hafi verið byggð á 13. gr. laganna.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu.
Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta sé að hann sé í virki atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi m.a. að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.
Í c. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé mælt fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun beri því að stöðva greiðslur til kæranda á meðan hann hafi dvalið erlendis. Þegar kærandi geti sýnt fram á að hann sé staddur á Íslandi muni stofnunin taka mál hans fyrir að nýju.
Í 3. mgr. 9. gr. sé mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar. Þar segi:
„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“
Í athugasemdum með frumvarpi til laga nr. 37/2009 segi meðal annars að „láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun þessar upplýsingar sem og í þeim tilvikum þegar rangar upplýsingar eru gefnar kemur til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laganna.“
Í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé enn frekar mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu atvinnuleitanda. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti.
Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög við brotum á þessari upplýsingaskyldu hins tryggða, en þar segi orðrétt:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. h-lið 1. mgr. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur vísvitandi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Ekki liggi fyrir með óyggjandi hætti að kærandi hafi farið erlendis þann 22. ágúst 2025 eins og kærandi hafi áður haldið fram. Í kæru sinni greini kærandi frá því að hann hafi í reynd farið erlendis í júlí og hefði láðst að tilkynna um ferðir sínar erlendis. Þá segi kærandi að hann hafi sótt um greiðslur bóta í byrjun júlí 2025 en rétt sé að umsókn kæranda sé dagsett 11. júní 2025. Því sé ljóst að kærandi hafi verið erlendis um nokkurt skeið. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrir fram um þessa utanlandsferð eða ferðir sínar líkt og honum hafi borið samkvæmt 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Vinnumálastofnun meti skýringar kæranda ekki gildar. Í því samhengi sé vísað til þess að kærandi hafi lagt fram gögn í málinu sem hefðu átt að sýna ferðadagsetningar en þegar hann hafi verið inntur eftir brottfararspjöldum hafi stofnuninni borist skýringar um ómöguleika á því að skila þeim gögnum þar sem kærandi hefði hent þeim. Ekki sé til að dreifa tilkynningu af hálfu kæranda um þá ferð erlendis fyrr en eftir að honum hafi verið gert að mæta í vinnumarkaðsúrræði á vegum Vinnumálastofnunar.
Þegar rafrænni umsókn um greiðslu atvinnuleysisbóta sé skilað sé umsækjendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar með talið að tilkynna beri um ferðir erlendis. Umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki að þeir hafi lesið og skilið þær upplýsingar sem fram komi í umsókn um réttindi og skyldur umsækjenda um atvinnuleysisbætur. Kærandi hafi samþykkt framangreinda skilmála þegar hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur hjá stofnuninni þann 11. júní 2025. Þá séu víðtækar og ítarlegar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitanda á vefsíðu Vinnumálastofnunar. Ljóst sé að réttindi og skyldur atvinnuleitenda samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar stofnist frá og með umsóknardegi, enda séu atvinnuleysisbætur greiddar frá og með umsóknardegi skv. 29. gr. laganna. Á því tímabili sem atvinnuleitandi fái greiddar atvinnuleysisbætur beri honum að tilkynna Vinnumálastofnun um allar breytingar á högum sínum, sbr. 3. mgr. 9. gr. laganna, þar á meðal ferðir sínar utanlands.
Að öllu framangreindu virtu sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er hafi bein áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysistrygginga og að hann skuli því sæta viðurlögum samkvæmt 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi eigi ekki rétt á greiðslum atvinnuleysisbótum á meðan hann sé staddur erlendis og að hann skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærðar eru ákvarðanir Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur á grundvelli c. liðar 1. mgr. 13. gr. laganna. Kemur fyrst til skoðunar ákvörðun stofnunarinnar um niðurfellingu bótaréttar.
Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði c. liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 þar sem fram kemur að launamaður sé tryggður samkvæmt lögunum sé hann búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi.
Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar.
Fyrir liggur að kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 11. júní 2025. Kæranda var þann sama dag send staðfesting á móttöku umsóknar og tilkynnt að umsóknin yrði miðuð við 25. júní 2025 þar sem hann hafi tilgreint í umsókn að hann gæti hafið störf þann dag. Kæranda var einnig tilkynnt að hann þyrfti að staðfesta atvinnuleit milli 20. og 25. hvers mánaðar inn á „Mínum síðum“, jafnvel þótt umsóknin væri enn í vinnslu hjá Vinnumálastofnun. Þá var kæranda greint frá því að ef hann færi til útlanda þyrfti hann að tilkynna það fyrir fram inn á „Mínum síðum“. Að endingu var kæranda bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur væri að finna undir liðnum „Hvað þarftu að vita“ á vefsíðu stofnunarinnar eða inn á „Mínum síðum“. Umsókn kæranda var samþykkt 22. júlí 2025.
Þegar kærandi var boðaður á fund hjá Vinnumálastofnun 21. ágúst 2025 tilkynnti hann um orlof fyrir tímabilið 22. til 28. ágúst 2025. Kærandi hefur þó greint frá því að hafa farið til útlanda með fjölskyldu sinni áður en umsókn hans var samþykkt.
Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála liggur því ljóst fyrir að kærandi fór til útlanda eftir að hafa sótt um atvinnuleysisbætur en tilkynnti ekki Vinnumálastofnun um þá ferð. Að því virtu og í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður því fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um ferð sína til útlanda. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði er því staðfest.
Kemur þá til skoðunar ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur á þeim grundvelli að hann væri ekki staddur á Íslandi. Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Eitt af þeim skilyrðum er að vera búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi, sbr. c. lið 1. mgr. 13. gr.
Samkvæmt gögnum málsins átti kærandi flugmiða til B þann 7. september 2025 en hefur ekki lagt fram flugmiða sem staðfestir komu aftur til Íslands. Að því virtu er það mat úrskurðarnefndarinnar að Vinnumálastofnun hafi verið rétt að synja umsókn hans um atvinnuleysisbætur þann 9. september 2025. Sú ákvörðun er því einnig staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. september 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest. Ákvörðun stofnunarinnar um að synja umsókn hans um atvinnuleysisbætur, er einnig staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir