21 nóvember 2025

/

Fjölmennasta heilbrigðisþingið til þessa – viðfangsefnið var endurhæfing

{image.Description}
Ljósmyndir: Bent Marinósson
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra við setningu heilbrigðisþings 2025

Um 500 manns sóttu heilbrigðisþing um endurhæfingu – leiðir til betra lífs sem fram fór í gær og mikill fjöldi fylgdist með í beinu streymi. Þessi mikla þátttaka endurspeglar áhugann á viðfangsefninu, enda má ætla að um þriðjungur fólks þurfi á endurhæfingu að halda einhvern tíma á lífsleiðinni og fjöldi fagstétta með margvíslega menntun og sérhæfingu starfar á sviði endurhæfingar. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra setti þingið og sagði þar meðal annars frá yfirstandandi vinnu við mótun stefnu og framtíðarsýnar í þessum mikilvæga málaflokki. Þingið var haldið sem liður í því viðamikla verkefni en fjölmargir aðilar hafa þegar komið að verkinu, meðal annars á fjölmennri vinnustofu nýverið.

Alma benti á í ávarpi sínu að endurhæfing sé ein af grunnstoðum árangursríkrar heilbrigðisþjónustu. Hún sé afar fjölbreytt og margvísleg enda þörf fólks fyrir endurhæfingu sprottin af margvíslegum og ólíkum ástæðum. Markmiðin séu þó alltaf þau sömu; að bæta lífsgæði, auka færni og virkni, og styðja fólk til sjálfstæðis og sjálfshjálpar.

Alma benti á að sú fjölbreytni sem endurhæfingarþjónustan byggist á, feli í sér styrk en jafnframt ákveðinn vanda þegar kemur að því að skilgreina hana, tryggja samhæfingu milli þjónustukerfa og skapa samræmi við mat á endurhæfingarþörfum fólks og árangri þjónustunnar. Þetta segir hún að verði meðal viðfangsefna stefnumótunarinnar ásamt mörgum öðrum þáttum sem tengjast áskorunum á sviði endurhæfingar nú og til framtíðar. Hún benti einnig á stækkandi hópa fólks sem muni þurfa á endurhæfingu að halda vegna öldrunar þjóðar og einnig ýmissa langvinnra sjúkdóma sem oft eru tengdir við lifnaðarhætti og þarf að sporna við með öllum ráðum. 

Byggjum á góðum grunni og tækifæri í nýjungum

„Við höfum góðan grunn að byggja á. Fyrir hendi er mikil sérfræðiþekking, öflugar stofnanir, virk teymisvinna, sérhæfðar lausnir sem hafa þróast með reynslu – og síðast en ekki síst fagfólk sem vinnur af ósérhlífni og alúð. Þetta eru mikil verðmæti sem við þurfum að varðveita og ávaxta“ sagði Alma meðal annars í ávarpi sínu. Hún sagði einnig að ekki væri ástæða til annars en bjartsýni; „því í nútíð og framtíð sjáum við nýjar dyr opnast sem leiða okkur að nýjum lausnum og auknum tækifærum til að takast á við áskoranirnar. Þar vísa ég til örrar þróunar á sviði fjarheilbrigðisþjónustu, velferðartækni og margvíslegra stafrænna lausna. Nýjungar á þessu sviði gera mögulegt að bæta aðgengi og gæði þjónustu, að veita fleirum þjónustu á hagkvæmari hátt og að auka samfellu, ekki síst með bættu flæði upplýsinga milli þjónustuveitenda. Nýjar lausnir styðja jafnframt við notendur endurhæfingar og efla möguleika þeirra til virkni og sjálfshjálpar.“

Alma sagði það stórt og mikilvægt verkefni að móta skýra stefnu og framtíðarsýn um endurhæfingu á Íslandi. Sú vinna sé komin á fulla ferð og hún leggi ríka áherslu á að vinnan fari fram í samvinnu við fagaðila, þjónustuveitendur og notendur, því víðtækt samráð þurfi svo vel takist til. 

Þakkir til þátttakenda

Dagskrá heilbrigðisþings var þétt, fyrirlesarar margir með fjölbreytt og fróðleg erindi, í tveimur pallborðsumræðum á þinginu voru málin krufin og horft til framtíðar. Öllum sem tóku þátt í þinginu og lögðu af mörkum til að gera það áhugavert, skemmtilegt og gagnlegt eru færðar bestu þakkir og sömuleiðis öllum þeim sem sátu þingið, jafnt nær og fjær.

Á vefsíðu þingsins eru upplýsingar um fyrirlesarana og efni erinda þeirra og þar er jafnframt aðgengileg upptaka frá þinginu. Í upptökunni birtast einnig myndbönd með frásögnum notenda endurhæfingar af upplifun sinni á endurhæfingu, gildi hennar og gagnsemi.

Ljósmyndir frá þinginu tók Bent Marinósson.